Kópavogshöfn
Hagnýtar upplýsingar
Upplýsingar um gjöld hjá Kópavogshöfn, þar á meðal bryggju- og smábátagjöld.
Upplýsingar um öryggisreglur, slysavarnir og öryggisbúnað á hafnarsvæði.
Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum samkvæmt reglugerð nr. 1200/2014.
Höfnin í beinni
Fylgstu með aðstæðum við smábátahöfnina í rauntíma.
Hafnarsvæðið við Kársnes

Vestasti hluti Kópavogs
Kársnes er vestasti hluti Kópavogs og að mörgu leyti aðskilið frá öðrum hverfum bæjarins vegna Hafnarfjarðarvegar. Byggðin á Kársnesi er mjög gróin en á sitthvorum enda hennar, við hafnarsvæðið og í Hamraborg, eru spennandi uppbyggingar- og þróunarsvæði. Ólík staðareinkenni innan Kársnessins skipta því í fjóra hluta þar sem Borgarlínan mun fara um; Hafnarsvæðið á Kársnesi (Bakkabraut), Borgarholtsbraut vestur, Borgarholtsbraut austur og Hamraborg.

Fossvogsbrúin
Fossvogsbrúin er mikilvægur liður í 1. lotu Borgarlínunnar og gert er ráð fyrir að niðurstöður úr hönnunarsamkeppni fyrir brúna verði kynntar 2021. Með Fossvogsbrúnni munu göngu og hjólatengingar stórbatna og mun stofnleið stígakerfis höfuðborgarsvæðisins liggja um strandlínuna við Kópavog um Bakkabraut og yfir Fossvoginn. Því má reikna með að Bakkabraut verði fjölfarin borgargata þar sem fjölbreyttir ferðarmátar munu blandast saman.

Spennandi uppbygging
Hafnarsvæðið á Kársnesi er í mikilli uppbyggingu og endurnýjun. Unnið er að nýjum deiliskipulagstillögum fyrir svæðið með áherslu á hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem íbúum og gestum líður vel. Á Kársnesi er að rísa nútímalegt hverfi í bland við eldri byggð, með góðum tengingum við Borgarlínu, göngu- og hjólastíga og aðra innviði sem styðja virka ferðamáta.

Aðdráttarafl
Nálægðin við höfnina og sjávarútsýnið veita svæðinu mikið aðdráttarafl en nú þegar er þar mikill straumur vegfarenda sem nýtir sér góða göngu- og hjólastíga meðfram strandlengjunni sér til ánægju og heilsubótar. Spennandi hlutir hafa þegar litið dagsins ljós og þar má nefna nýtt baðlón yst á hafnarsvæðinu. Mun það án efa verða spennandi áfangastaður fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu en einnig innlenda og erlenda ferðamenn þegar fram í sækir.