Nágrannavarsla
Nágrannavarsla er samstarf íbúa, lögreglu og Kópavogsbæjar sem stuðlar að auknu öryggi, samheldni og vellíðan í hverfum bæjarins.
Nágrannavarsla í Kópavogi
Markmið nágrannavörslu er að efla tengsl milli nágranna, auka árvekni í nærumhverfinu og draga úr líkum á innbrotum, þjófnaði og skemmdarverkum.
ATH! Unnið er að verklagi við umsókn um nágrannavörsluskilti.
Nágrannavarsla byggir á einfaldri hugmynd: að nágrannar séu til staðar hver fyrir annan.
Um er að ræða forvarnarverkefni þar sem íbúar:
- fylgjast með nærumhverfinu,
- láta vita af grunsamlegri hegðun,
- líta eftir húsum nágranna í fjarveru þeirra,
- miðla upplýsingum og góðum ráðum,
- stuðla að góðum samskiptum og sterkari hverfisvitund.
Nágrannavarsla er ekki löggæsla.
Nágrannavarsla er samstarfsverkefni íbúa. Hún felur ekki í sér sérstakar heimildir eða eftirlitshlutverk. Allar tilkynningar um grunsamlega háttsemi skulu berast til lögreglu í síma 112.
Virk nágrannavarsla getur:
- aukið öryggiskennd íbúa,
- dregið úr innbrotum og þjófnaði,
- fækkað skemmdarverkum,
- styrkt samheldni í hverfum,
- auðveldað nýjum íbúum að tengjast samfélaginu,
- stuðlað að betra og öruggara nærumhverfi.
Þegar nágrannar eru fjarverandi
- Hafa auga með húsinu.
- Fylgjast með að póstur safnist ekki upp.
- Draga frá og fyrir gluggatjöld.
- Kveikja og slökkva ljós ef samkomulag er um það.
- Koma sorptunnum út eða inn eftir þörfum.
- Moka snjó eða slá gras ef um lengri fjarveru er að ræða.
- Leggja bíl í innkeyrslu ef við á.
- Fylgjast með óvenjulegum manna- eða bílaferðum.
- Tilkynna grunsamleg atvik til lögreglu.
- Taka vel á móti nýjum nágrönnum.
- Taka þátt í samskiptum og upplýsingamiðlun innan hverfisins.
Áður en þú ferð í lengri fjarveru er gott að:
☐ Læstu öllum hurðum, gluggum, svalahurðum og bílskúrshurðum.
☐ Láttu traustan nágranna vita að þú verðir fjarverandi.
☐ Biddu nágranna um að tæma póstkassann og fylgjast með húsinu.
☐ Notaðu tímastýringu á ljósum svo heimilið líti út fyrir að vera í notkun.
☐ Fjarlægðu stiga, verkfæri og aðra hluti sem gætu auðveldað aðgang að húsinu.
☐ Ekki auglýsa fjarveru þína opinberlega á samfélagsmiðlum.
☐ Tryggðu að verðmæti séu ekki sýnileg í gluggum eða bifreiðum.
☐ Ef þú verður var/ur við grunsamlegar manna- eða bílaferðir skaltu hafa samband við lögreglu í 112.
Lögreglan
Innbrot og þjófnaður