Beint í efni

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ingar

Viðurkenningarnar eru ætlaðar einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem skara fram úr í hönnun, frágangi og umhirðu umhverfis eða vinna markvisst að því að bæta umhverfi sitt og annarra.

Kópavogsbær óskar eftir tilnefningum frá íbúum um hver skal hljóta viðurkenningu ársins 2026.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 2. júlí.

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ing - til­nefn­ing

Ertu með auga fyrir umhverfinu?

Umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar eru veittar þeim sem taldir hafa skarað fram úr í hönnun, frágangi og viðhaldi umhverfis og húsa eða þeim sem markvisst vinna að því að betrumbæta umhverfi sitt og annarra.

Kópavogsbær óskar eftir tilnefningum frá íbúum um hver skal hljóta viðurkenningu ársins 2026. Viðurkenningarnar verða veittar af Skipulags- og umhverfisráði.

Hægt er að tilnefna einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök, sem og einstök hús, fjölbýli eða lóðir, sem hafa skarað fram úr í að bæta umhverfi sitt og annarra. Meðal flokka sem veitt er viðurkenning fyrir eru umhirða húss og lóðar, endurgerð húsnæðis, frágangur lóðar, hönnun og framlag til umhverfismála.

Vinsamlegast tilgreinið fyrir hvað er tilnefnt, til dæmis umhirðu húss og lóðar, endurgerð húsnæðis, hönnun, fallegan frágang lóðar. Athugið að bæði er átt við sérbýli og fjölbýli.

Gata árs­ins - til­nefn­ing

Frestur til að tilnefna götu ársins 2026 er liðinn.

Frá árinu 1995 hefur bæjarstjórn veitt einni götu nafnbótina Gata ársins árlega og mun 32. gatan hljóta viðurkenninguna árið 2026.

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ingar frá 1995

Umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar hafa verið veittar árlega frá 1964. Upphaflega voru þær veittar fyrir garða og lóðir en síðar einnig til einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja.

Umhverfis- og samgöngunefnd hefur veitt viðurkenningarnar á undanförnum árum, en þar áður var það hlutverk Umhverfisráðs. Frá árinu 2025 er það í höndum Skipulags- og umhverfisráðs að veita viðurkenningarnar.

Umhverfisviðurkenningar - Kópavogsbær