Vorhreinsun
Við vorhreinsun í Kópavogi eru gámar fyrir garðaúrgang aðgengilegir á völdum stöðum í bænum. Þar geta íbúar losað sig við úrgang eftir tiltekt í görðum sínum.
Vorhreinsun stendur yfir dagana 30. apríl.- 19. maí.

Kópavogsbær hvetur íbúa til að taka til hendinni eftir veturinn og gera garðana tilbúna til að taka á móti vorinu. Opnir gámar verða aðgengilegir íbúum á fimm stöðum í bænum þar sem hægt verður að losa sig við garðaúrgang og trjágreinar.
Gámarnir verða aðgengilegir frá 30. apríl til 19. maí.
- Kársnes, við grenndarstöðina Borgarholti.
- Digranes, við íþróttahúsið Digranesi, Skálaheiði 2.
- Smára- og Lindahverfi, neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2.
- Lindir- og Salir, við Salalaug.
- Þing-, Hvörf- og Kórar, á malarstæðinu við Vallakór 8.
Garðaúrgangurinn á ekki að fara í plastpokum eða öðrum ílátum í gáminn.
Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt er að setja annað í þá. Hægt er að skila öðrum úrgangi á endurvinnslustöðvar SORPU.
Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.