Lagfæringar og breytingar á Grænatún
Endurnýjun á malbik á Grænatún og breyting á götumynd
Fyrirhugað er að endurnýja malbik á Grænatúni á næstu vikum þar sem eldra malbik verður fræst í burtu og nýtt malbik lagt á. Samhliða þessum breytingum er fyrirhugað bæta umferðaröryggi í Grænatúni en umferðarhraði og möguleikar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur til að þvera götuna eru takmarkaðir. Grænatún er í dag 8 m breið og virkar sem breiðgata. Gangstéttar sitthvoru megin við hana eru 1,7 m á breidd. Engar gönguþveranir eru á götunni fyrir utan gönguþverun við Kjarrhólma og engar niðurtektir á gangstéttum til að auðvelda gangandi og hjólandi að komast yfir götuna.
Ráðgert er að mjókka akbrautir í 3 m í hvora átt og koma fyrir merktum bílastæðum þar sem þess er kostur meðfram götunni. Steyptar verða eyjar sem afmarka götu og bílastæði og komið fyrir gróðri í þeim. Settar verða gangbrautir við Bæjartún og gatnamótin við Ástún, gangstéttarkantar lækkaðir og komið fyrir skiltum. Bætt verður hámarkshraðamerkingum meðfram götunni með skiltum og á götuna sjálfa með yfirborðsmerkingum. Ekki verður komið fyrir upphækkun á götunni (hraðahindrun) en með þrengingu götunnar er hægt að ná samskonar árangri án þess að draga úr akstursþægindum. Upphækkuð gangbraut við gatnamót Kjarrhólma og Álfatúns mun halda sér en mjókka um rétt rúma 2 m.
Markmiðið með þessum breytingum er að lækka umferðarhraða og bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda auk þess að endurnýja malbik og bæta ásýnd götunnar með gróðri án þess að draga úr akstursþægindum. Núverandi aðgengi að innkeyrslum húsa við götuna mun haldast óbreytt.



