Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fram­kvæmd­ir við Gjánna

Unnið er að viðhaldsframkvæmdum undir Gjánni, milli Kársness og Digraness.

Unnið er að viðhaldsframkvæmdum undir Gjánni, milli Kársness og Digraness.

Í verkinu felst sandblástur og málun á 32 burðarbitum undir brúnni yfir gjánna. Til þess að takmarka rask af framkvæmdum og áhrif á umferð er verkið unnið á kvöldin og nóttunni. Einhver hávaði gæti fylgt sandblæstrinum og er beðist velvirðingar á því.

Verkið er framhald viðhaldsframkvæmda sem unnar voru á síðasta ári. Í leiðinni verður undirbúinn síðasti hluti verksins sem unninn verður á næsta ári.