Til baka í yfirlit
Lokun Kópavogsbrautar við hringtorg 8. júlí til 24. júlí.
Hringtorgi við austurenda Kópavogsbrautar verður lokað 8.júlí vegna hitaveituframkvæmda.

Gerður verður bráðabirgðavegur fram hjá vinnusvæði við hringtorg fyrir þá umferð sem fer til suðurs eða í átt að Garðabæ. Kópavogsbraut verður lokað við hringtorgið í báðar áttir. Hjáleiðir verða í báðar áttir um Kópavogsbraut, Urðarbraut og Borgarholtsbraut.