Beint í efni
Til baka í yfirlit

Lind­ar­veg­ur og hluti Bæj­ar­lindar lok­að­ur fimmtu­dag 23. júlí vegna mal­bik­unar

Fyrirhugað er að malbika Lindarveg milli Fífuhvammsvegar og Álalindar auk hluta Bæjarlindar við Lindarveg fimmtudaginn 23. júlí ef veður leyfir. Lokun mun vera í gildi frá kl. 9:00 til 14:00.

Aðkoma að Bæjarlind mun vera frá Reykjanesbraut á meðan framkvæmdum stendur og hjáleið til og frá Lindarvegi er um Fitjalind. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.