Beint í efni
Til baka í yfirlit

Lok­un á Gula­þing vegna mal­bik­unar

Fyrirhugað er að malbika Gulaþing fimmtudaginn 20. ágúst milli kl. 9:00 og 14:00 ef veður leyfir. Malbikað verður á milli húsa 28 og 58 og verður gatan lokuð fyrir allri almennri umferð á meðan framkvæmdum stendur. Aðkoma að húsum nr. 4 til 26 og að Hafraþing mun haldast óbreytt. Hægt verður að komast frá húsum við Gulaþingi 1-23, Gulaþing 60-70 og Hólmaþing um bráðabirgða hjáleið á göngustíg sem liggur á milli Gulaþing 25 og Elliðahvammsvegar en ekki verður hægt að komast inn í hverfið um hjáleiðina á meðan lokun stendur sökum þrengsla. Ökumenn sem nýta sér hjáleiðina út úr hverfinu verða að taka fullt tillit til gangandi vegfarenda sem gætu farið um stíginn og halda hraða ökutækja ekki yfir 5 km/klst. Aðkoma að Gulaþing 28-58, Hálsaþing og Heiðaþing verður verulega skert en hægt er að leggja ökutækjum við Elliðahvammsveg eða á malarplani á milli Boðaþings og Gulaþings. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.