Önnur akrein Dalvegar, akrein til austurs lokuð föstudaginn 24. júlí frá kl. 8:00 vegna malbikunar.

Fyrirhugað er að malbika aðra akrein Dalvegar, akrein til austurs að Nýbýlavegi, föstudaginn 24. júlí frá kl. ef veður leyfir. Lokun mun vera í gildi frá kl. 8:00 til um það bil 14:00. Vakin er athygli á að akrein til vesturs, í átt að Smáralind mun vera þrengd á meðan framkvæmdum stendur og hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst. Þeim sem eiga erindi til og frá Dalveg 30B er bent á að aka um lóð Dalvegar 30A. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.