Digranes
Digranes afmarkast af Hafnarfjarðarvegi í vestri, Fossvogslæk í norðri, Reykjanesbraut í austri og Kópavogslæk í suðri.
Á Digranesi eru falleg og skemmtileg svæði sem gaman er að fara um.

Kópavogsdalur
Í dalnum má finna fjölda af göngu- og hjólastígum og finna allir eitthvað við sitt hæfi. Vestast í dalnum er andapollur með fjölbreyttu fuglalífi og þar má einnig finna íþróttasvæði Breiðabliks, eitt stærsta íþróttasvæði landsins.
Ef farið er austar í dalinn má finna líkamsræktartæki og leiksvæði, fjöldann allan af setbekkjum og skólagarðar fyrir börn á aldrinum 5 til 13 ára. Margar skemmtilegar hlaupaleiðir í dalnum t.d. hin vinsæla Himnastiga sem liggur upp á Digranesheiði.

Himnastiginn
Himnastiginn liggur frá Kópavogsdal og upp að Digranesheiði. Um er að ræða brattan stiga sem er einn vinsælasti líkamsræktarstaður höfuðborgarsvæðisins. Hafa göngufólk jafnt sem hlauparar notað stigann til æfinga og verður hann sífelt fjölsóttari. Bráðlega munu koma líkamsræktartæki við enda stigans og kemur það til með að auka vinsældir hans enn meira. Hvað eru tröppurnar margar?

Hlíðargarður
Hlíðargarður neðan Digranesvegar er sögufrægur og forvitnilegur skrúðgarður í hjarta Kópavogs. Garðurinn liggur frá Hlíðarvegi í norðri og niður að Fífuhvammi. Garðurinn var í upphafi hannaður líkt og gamlir hallargarðar Evrópu og var lengi notaður af Kópavogsbúum til 17. júní hátíðarhalda. Skjólið og friðurinn í garðinum er einstakt og nágrenni hans frábært. Við syðri enda garðsins er leiksvæði ásamt grasflötum. Perla í hjarta Kópavogs.

Víghóll
Víghóll er svokallað hvalbak efst á Digraneshálsi, mótaður af ísaldarjökli. Þar má sjá um 10.000 ára gamlar jökulrispur í bergi. Hóllinn var upphaflega ætlaður undir Digraneskirkju og enn má sjá móta fyrir kirkjugrunninum. Á svæðinu er útikennslustofa, skógrækt og útsýnisskífa með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið. Þar er einnig fótboltavöllur sem áður var heimavöllur ÍK.

Einbúi
Austan Skemmuvegar er Einbúi, hóll sem áður var landamerki. Þar var grágrýti unnið í atvinnubótavinnu á kreppuárunum fyrir fyrirhugaða járnbraut. Sagan segir að álfur eða huldumaður búi í hólnum og því sé ekki óhætt að hrófla við honum. Sagt er frá húsbyggjanda sem lét vinna nærri hólnum þrátt fyrir viðvaranir. Ýta sem notuð var bilaði við hólinn en reyndist í lagi þegar hún var skoðuð.

Fossvogsdalur
Fossvogsdalur er vinsælt útivistarsvæði á mörkum Kópavogs og Reykjavíkur. Göngu- og hjólastígar tengja dalinn við stígakerfi höfuðborgarsvæðisins. Þar eru fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar, meðal annars strandblak, frisbígolf og íþróttasvæðið í Fagralundi. Í austanverðum dalnum er trjásafn með um 500 tegundum trjáa og runna. Þar er einnig Yndisgarðurinn með matjurtagörðum, grilli og setbekkjum.