
Skólahljómsveit Kópavogs
Innritun fer fram á vorin og er opin börnum í 3. bekk grunnskóla Kópavogs. Ávallt er biðlisti eftir plássum og ekki komast allir að sem sækja um. Upplýsingar um innritun koma á heimasíðuna í maí.
- HeimilisfangTónhæð við Álfhól, Álfhólsvegi 102
- Sími441 9740
- Netfangskolahljomsveit@kopavogur.is
Helstu upplýsingar
Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð á haustmánuðum 1966.
Afmælisdagur sveitarinnar er þó ávallt miðaður við fyrstu tónleikana sem haldnir voru við Kársnesskóla þann 22. febrúar 1967. Stofnandi sveitarinnar var Björn Á. Guðjónsson trompetleikari og stjórnaði hann hljómsveitinni óslitið og af miklum dugnaði fram til ársins 1993 þegar Össur Geirsson tók við stjórninni.
Að jafnaði eru um 175 hljóðfæraleikarar í Skólahljómsveit Kópavogs og er þeim skipt í þrjár sveitir eftir aldri og getu.

A sveit
Í A-sveit eru yngstu hljóðfæraleikararnir, úr 4. – 6. bekk grunnskóla.
- A sveitin æfir á mánudögum og fimmtudögum kl. 15:50 til 16:40.
B-sveit
Í B-sveit eru nemendur úr 6. – 8. bekk.
- B sveitin æfir á þriðjudögum og föstudögum kl. 16:00 – 17:25
C sveit
Í C-sveitinni eru krakkar úr 8. – 10. bekk auk nokkurra eldri félaga.
- C sveitin æfir á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:00 – 18:50.
Hljómsveitirnar gegna veigamiklu hlutverki í bæjarsamfélaginu og koma þær oft fram á hátíðum og athöfnum í bænum. Að jafnaði koma sveitirnar fram um 90 sinnum á ári, oftast innan skólakerfisins en af öðrum föstum viðburðum má nefna skrúðgöngur á 17. júní og sumardaginn fyrsta. Einnig er vinsælt að kalla hljómsveitirnar til við ýmiskonar vígslur, fyrstu skóflustungur, íþróttaviðburði og aðrar hátíðir.
Haldnir eru tvennir stórir tónleikar á hverjum vetri sem við köllum haust- og vortónleika. Á hausttónleikunum er efnisskráin gjarnan í léttari kantinum og oft með ákveðnu þema. Þemu undanfarinna ára hafa m.a. verið Íslensk tónlist, Jazz-og blús og Latin-tónlist. Vortónleikarnir 2017 voru óvenjuveglegir vegna 50 ára afmælis sveitarinnar og voru þeir haldnir fyrir fullu húsi í Eldborgarsal Hörpu.
Allar sveitirnar fara í tónleikaferðir eða æfingabúðir innanlands. Elsta sveitin fer í tónleikaferðir til útlanda annað hvert ár. Einnig fór B sveitin í ferð árið 2007, til Gautaborgar. Síðast var farið í júní 2026 til Calella á Spáni.
Til að auðvelda öllum nemendum að komast í ferðir hljómsveitarinnar er reglulega safnað í ferðasjóð sem hefur það hlutverk að niðurgreiða tónleikaferðirnar. Hér má sjá reglur ferðasjóðsins.
Skólahljómsveitin flutti í splunkunýtt húsnæði í viðbyggingu við Álfhólsskóla í byrjun mars 2020. Hljómsveitin var þar áður í Digranesi frá hausti 1999. Lengst af hafði hún aðstöðu í kjallara íþróttahúss Kársnesskóla og um tíma var hún í gömlu bóndabýli sem stóð við Ástún 6.
Innritun fer fram á vorin og er opin börnum í 3. bekk grunnskóla Kópavogs. Ávallt er biðlisti eftir plássum og ekki komast allir að sem sækja um. Upplýsingar um innritun koma á heimasíðuna í maí.
Skólagjöld fyrir haustönn 2026 eru 33.448 krónur. Hægt er að nýta frístundastyrk Kópavogsbæjar á móti námsgjaldinu.
Nemendur geta fengið leigð þau hljóðfæri sem þeir læra á. Þó er hvatt til þess að nemendur eignist sín eigin hljóðfæri fyrr en síðar. Hljóðfæraleiga fyrir haustönn 2026 eru 7.115 krónur.

Upplýsingar um röskun á skólastarfi vegna veðurs
Við hjá SK fellum almennt ekki niður starfsemi okkar þó veður séu slæm.
- Í þeim tilvikum að kennsla fellur niður vegna illviðris eða annarra viðburða sendum við tilkynningar um það í tölvupósti til nemenda og foreldra.
- Við erum til staðar í Tónhæð fyrir þá nemendur sem koma til okkar, nánast hvernig sem viðrar.
- Við setjum það hins vegar í vald foreldra að meta það hverju sinni hvort óhætt sé að senda börn til okkar, biðjum einungis um að við séum látin vita um forföllin í SpeedAdmin.
- Við höfum þetta fyrirkomulag meðal annars vegna þess að við erum með nemendur á ýmsum aldri allt frá 9 til 19 ára, sem eiga mislangt að sækja í tíma og búa við mismunandi aðstæður til að komast til okkar.
- Þegar tilkynningar koma frá Kópavogsbæ eða Samskiptamiðstöð almannavarna um að foreldrar haldi börnum sínum heima er eðlilegt að taka tillit til þess.
Upplýsingar um hvernig forsjáraðilar bregðast við veðurviðvörunum frá Veðurstofu Íslands eru að finna í eftirfarandi leiðbeiningum: