Námsgreinar
Hljóðfæranám

Altsaxófónn
Saxófónar eru til í nokkrum stærðum og algengast er að byrjendur læri á Altsaxófón. Seinna gefst þeim tækifæri að færa sig yfir á Tenórsaxófón og jafnvel á Barítónsaxófón.
Kennarar:

Barítónhorn
Barítónhorn er miðlungsstórt málmblásturshljóðfæri sem hentar vel fyrir byrjendur. Tiltölulega auðvelt er að ná fallegum tón úr hljóðfærinu og það hvílir þægilega í fangi hljóðfæraleikarans.
Kennarar:

Básúna
Básúnan er eina málmblásturshljóðfærið sem ekki hefur takka til að breyta um tónhæð heldur er notaður sleði sem færist fram og til baka til að breyta tónhæðinnni. Byrjendur í SK fá oftast minni gerð af básúnu í byrjun, sem hentar vel styttri höndum.
Kennarar:

Flauta
Flautan (þverflautan) flokkast sem tréblásturshljóðfæri þó hún sé almennt smíðuð úr málmi í dag. Flautan spilar hæstu tónana í hljómsveitinni og það þarf að hafa gott tóneyra til að geta gert háu tónana hreina og fallega. Flautan er mikið notuð í klassískri tónlist og virkar líka vel í dans- og þjóðlagatónlist. Lengra komnir nemendur fá líka tækifæri til að spila á pikkólóflautu.
Kennarar:

Horn
Horn eru til í nokkrum gerðum og eru F og B hornin algengust. Einnig eru mikið notuð svokölluð tvöföld horn sem sameinar F og B hornin í eitt hljóðfæri og er skipt á milli þeirra með sérstökum þumalventli.
Hjá Skólahljómsveit Kópavogs er algengast að nemendur byrji á B horni en færi sig yfir á tvöfalt horn þegar lengra er komið í náminu.
Hornin eru mikið notuð í allskonar klassískri tónlist en minna í popp og jazztónlist.

Klarínett
Klarínettan er tréblásturshljóðfæri eins og flauta, saxófónn og fagott og jafnframt fjölhæfast tréblásturshljóðfæranna. Hægt er að spila mjög bjarta og mjög dökka tóna á klarínettuna, háa tóna og djúpa og svo er líka auðvelt að spila bæði veika tóna og sterka. Klarínettan er mest notuð í klassískri tónlist og á líka heima í jazz- og söngleikjatónlist. Lengra komnir nemendur fá líka tækifæri til að spila á bassaklarínettu.
Kennarar:
Eyrún Þóra Sigurjónsdóttir
Margrét Birna Sigurbjörnsdóttir
Kristín Þóra Pétursdóttir
Rafbassi
Rafbassi er mikið notaður í popp og jazztónlist og einnig í blásaratónlist. Hann gefur góðan botn í lögin sem hljómsveitin spilar en getur því miður ekki leikið með í skrúðgöngum. Byrjendur í SK læra yfirleitt á styttri bassa í byrjun en færast upp á bassa í fullri lengd þegar þau stækka. Hljómsveitin á einnig kontrabassa sem notaður er í stærri hljómsveitarverkum með elstu sveitinni.
Kennarar:
Birgir Bragason
Slagverk
Trommur af einhverju tagi finnast í sjálfsagt öllum menningarsamfélögum. Fjölbreytileiki hljóðfæranna er mjög mikill en hjá Skólahljómsveitinni er áherslan lögð á hefðbundið lúðrasveitarslagverk, auk kennslu á trommusett og mallet hljóðfæri.
Trommusett samanstendur oftast af bassatrommu, sneriltrommu, tom-toms, hi-hat og symbölum. Settið er mest notað í jass og popptónlist.
Sneriltromman er lítil tromma með gormabelti (snerli) við neðra skinnið, sem titrar með þegar leikið er á trommuna og framkallar þannig hin sérstaka hljóm hennar.
Bassatromman er stærsta tromman í hljómsveitinni. Á hana er leikið með sérstökum bassatrommukjuða.
Symbalar eru mikið notaðir í skólahljómsveitinni, ýmist eru þeir á statífi eða þeim er haldið með höndunum.
Congas og bongótrommur eru oft notaðar í suðuramerískri tónlist og nemendur SK læra að spila á þannig trommur líka.
Ýmiskonar handslagverk er líka notað eins og kúabjalla, tamborína, klaves, hristur og guiro og einnig er kennt á mallet hljóðfæri eins og klukkuspil og sílófón. Svo eru pákur eru ómissandi hluti af hljómsveitarslagverki og mikilvægur þáttur í slagversknáminu
Kennarar:
Kjartan Guðnason
Trompet
Trompet og kornett eru náskyld hljóðfæri og flokkast sem málmblásturshljóðfæri. Öll málmblásturshljóðfæri eru í grunninn búin til úr málmröri með munnstykki á einum enda til að blása í og bjöllustykki á hinum endanum sem breytir hljóðinu úr rörinu í fallegan tón.
Nemendur í Skólahljómsveit Kópavogs byrja að læra á kornett og skipta svo í trompet þegar þau hafa náð góðu valdi á hljóðfæraleiknum.
Það er líka auðvelt að skipta yfir á önnur málmblásturhljóðfæri eins og horn, barítón og túbu því fingrasetning og blásturstækni er mjög svipuð öll þessi hljóðfæri.
Kennarar:
Eiríkur Rafn Stefánsson
Jón Halldór Finnsson
Snorri Sigurðarson
Túba
Túban sér um að leggja góðan grunn að allri tónlist blásarasveita með fallegum. djúpum og hljómmiklum tónum. Túbur eru til í ýmsum gerðum en algengastar eru B og Es túbur. Í Skólahljómsveit Kópavogs byrja nemendur yfirleitt á því að læra á Es túbu en við notum líka B túbur, sem eru oftast hljómmeiri. Einnig eigum við Súsafóna til að nota í skrúðgöngum. Okkar sousafónar eru yfirleitt úr plasti til að auðveldara sé að halda á þeim.
Kennarar:
Jón Halldór Finnsson