Beint í efni
Berglind Stefánsdóttir

Kennslugreinar: Flauta

Berglind Stefánsdóttir útskrifaðist með blásarakennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2004 þar sem kennarar hennar voru Bernharður Wilkinson og Hallfríður Ólafsdóttir.

Hún starfar nú sem flautukennari við Skólahljómsveit Kópavogs og hefur einnig kennt við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.

Berglind hefur sótt einkatíma og námskeið erlendis, m.a. hjá William Bennett, Dennis Bouriakov, Toke Lund Christiansen og Cecilie Løken.

Berglind er virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og hefur t.d. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Hljómsveit Íslensku óperunnar, Þjóðleikhúsinu, komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Myrkum- og Norrænum músíkdögum, Reykholtshátíð og sumartónleikum á Gljúfrasteini, Hólum, Þingvallakirkju og í Skálholti.

Var efnið á þessari síðu hjálplegt?

Takk fyrir að deila skoðun þinni!

Ástæða

Aðrar upplýsingar

Ef þú vilt fá svar við athugasemdinni skildu eftir netfang eða símanúmer

Berglind Stefánsdóttir - Kópavogsbær