Beint í efni

Bæj­ar­stjórn

Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 11 bæjarfulltrúum sem eru kosnir í hlutfallskosningu til fjögurra ára í senn.

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarfélagsins og skal ekkert mál sem varðar hagsmuni þess afgreitt án aðkomu hennar. Í bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar er kveðið á um stjórn sveitarfélagsins og fundarsköp bæjarstjórnar.

Bæj­ar­full­trú­ar

Bæj­ar­rit­ari

Bæjarritari er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar ásamt því að vera staðgengill bæjarstjóra í fjarveru hans.

Bæjarritari er yfir skrifstofu bæjarritara. Hlutverk bæjarritara er að samræma og hafa með höndum stjórn á starfsemi sem heyrir undir skrifstofuna, svo sem lögfræðiþjónustu, skjalaþjónustu og stuðning við bæjarstjóra og fastanefndir bæjarins.

Vara­bæj­ar­full­trú­ar

Fundir

Bæjarstjórn fundar annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er haldinn einn fundur í mánuði, þriðja þriðjudag mánaðarins.

Fundir bæjarstjórnar hefjast að jafnaði kl. 16:00. Heimilt er að fella niður fundi í allt að tvo mánuði yfir sumartímann og einn fund í desember.

Aukafundir eru haldnir eftir þörfum að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra. Skylt er að halda aukafund óski að minnsta kosti þriðjungur bæjarfulltrúa þess og geri grein fyrir fundarefni.

Falli reglulegur fundardagur á helgidag eða almennan frídag, skal boða til aukafundar þann virkan dag á undan eða eftir, sem næstur er.

asdf

Bæj­ar­stjórn­ar­fund­ir

Fundargerð fundarins er aðgengileg af vefnum tveimur dögum eftir fundinn.

Beina útsending frá bæjarstjórn

Fund­ar­gerð­ir

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar nema júlí og ágúst, er halda skal aðeins einn fund og þá þriðja þriðjudag hvers mánaðar.

Fundargerðir

Bæj­ar­mála­sam­þykkt

Ný bæjarmálasamþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar var samþykkt á 1310. fundi bæjarstjórnar, þann 26. nóvember 2024. Hún tók gildi 30.desember 2024 við birtingu í b-deild Stjórnartíðinda.

Í bæjarmálasamþykkt er meðal annars fjallað um:

  • Stjórn og skipan bæjarstjórnar
  • Verkefni sveitarfélagsins
  • Fundi og fundarsköp
  • Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa
  • Bæjarráð, fastanefndir, ráð og stjórnir
  • Bæjarstjóra og starfsfólk sveitarfélagsins
  • Fjármál sveitarfélagsins
  • Samráð við íbúa

Mál­efna­samn­ing­ur 2026-2030

Málefnasamningur meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks var kynntur 6. júní 2026.

Áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks byggir á sameiginlegri sýn um að Kópavogur verði áfram farsælt sveitarfélag í fremstu röð, þar sem lífsgæði íbúa eru ávallt höfð að leiðarljósi.

Meirihlutasáttmálinn byggir á sjö megináherslum sem fela í sér um fimmtíu og fimm verkefni sem verða sett í forgang á kjörtímabilinu.

  1. Ábyrgur rekstur er grunnur velferðar
  2. Grunnur að bjartri framtíð
  3. Fallegur bæjarbragur
  4. Örugg leið heim
  5. Meiri lífsgæði og betri lýðheilsa
  6. Lífsgæði sem við ræktum
  7. Saman erum við Kópavogur

Nefnd­ir og ráð

Ráð og nefndir Kópavogsbæjar sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði stjórnsýslu, þjónustu og stefnumótunar bæjarins.

Nefndir og ráð

Siða­reglur bæj­ar­full­trúa

Siðareglur bæjarfulltrúa í Kópavogi voru samþykktar í bæjarstjórn 28. janúar 2025 á 1313.fundi bæjarstjórnar.

Siðareglurnar eru unnar af forsætisnefnd en komið var að endurskoðun þeirra siðareglna sem gilt hafa um kjörna fulltrúa og voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogi árið 2015. Siðareglur voru fyrst settar árið 2009.

Siðareglur bæjarfulltrúa

  • Við störfum í þágu allra Kópavogsbúa með opnu samtali, virku upplýsingaflæði og hlustum á ólík sjónarmið. Farsæld íbúanna og komandi kynslóða er okkar hjartans mál.
  • Við stöndum vörð um fjárhag bæjarins og förum vel með eigur hans enda er traustur rekstur undirstaða farsældar og vaxtar.
  • Við störfum af heilindum og ábyrgð, sýnum háttvísi og berum virðingu fyrir skoðunum annarra.
  • Það á að vera gott að vinna hjá Kópavogsbæ og í því augnamiði virðum við hlutverk og störf starfsfólks, sýnum kurteisi og tillitssemi í samskiptum.
  • Við nýtum ekki stöðu okkar, upplýsingar né þiggjum gjafir í starfi ef það er í þágu eigin hagsmuna eða hagsmuna tengdra aðila.
  • Við gerum grein fyrir hagsmunum eða tengslum, leiki vafi á hæfi okkar í meðferð mála.
  • Við kynnum okkur málin, komum undirbúin til starfa, segjum satt og rétt frá, gætum trúnaðar og sýnum sanngirni í hvívetna.
Bæjarstjórn - Kópavogsbær