Nefndir og ráð
Ráð og nefndir Kópavogsbæjar sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði stjórnsýslu, þjónustu og stefnumótunar bæjarins.
Fastanefndir
Fastanefndir Kópavogsbæjar eru varanlegur hluti af stjórnskipulagi sveitarfélagsins og fara með afmörkuð verkefni á sviði stjórnsýslu og þjónustu samkvæmt lögum, samþykktum og erindisbréfum þeirra. Bæjarstjórn skipar fastanefndir til fjögurra ára að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn Kópavogsbæjar.
Ráðið er skipað fimm kjörnum bæjarfulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara.
Hlutverk bæjarráðs er meðal annars að hafa eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fara með fjármálastjórn þess, vinna drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggja þau fyrir bæjarstjórn.
Hlutverk bæjarráðs er meðal annars að hafa eftirlit með stjórnsýslu og fjármálastjórn sveitarfélagsins, vinna drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggja þau fyrir bæjarstjórn. Bæjarráð sér einnig um að ársreikningar sveitarfélagsins séu lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu.
Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur að öðru leyti. Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög kveði á um annað.
Bæjarráð fundar einu sinni í viku á fimmtudagsmorgnum kl. 8:15. Bæjarritari ritar fundargerðir bæjarráðs.
Nefndarmenn
Aðalmenn
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Orri Vignir Hlöðversson (B)
Hjördís Ýr Johnson (D)
Jónas Már Torfason (S)
Einar Jóhannes Guðnason (M)Varamenn
Elísabet B. Sveinsdóttir (D)
Guðmundur J. Jónsson (D)
Björg Baldursdóttir (B)
Eydís Inga Valsdóttir (S)
Nína B. Sigurgeirsdóttir (M)
Áheyrnarfulltrúi
María E. Steingrímsdóttir (V)
Varaáheyrnarfulltrúi
Pétur Björgvin Sveinsson (V)
Formaður bæjarráðs
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Varaformaður
Orri Vignir Hlöðversson (B)Embættismenn
Ásdís Kristjánsdóttir
Pálmi Þór Másson
Jóna Vigdís KristinsdóttirForsætisnefnd fer með skipulag og stjórnskipuleg málefni bæjarstjórnar Kópavogs.
Nefndin er skipuð þremur bæjarfulltrúum og jafnmörgum til vara og er kosin af bæjarstjórn til eins árs í senn. Forseti bæjarstjórnar er formaður nefndarinnar.
Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja starf og dagskrá bæjarstjórnar, hafa umsjón með alþjóðasamstarfi bæjarins, fjalla um breytingar á samþykktum og erindisbréfum nefnda, gera tillögur um starfskjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og fjalla um álitamál sem upp kunna að koma í störfum nefndakerfis og bæjarstjórnar.
Nefndin tekur einnig fyrir önnur mál sem forseti, nefndarmenn eða bæjarstjóri leggja fyrir hana. Fundargerðir nefndarinnar eru lagðar fyrir bæjarstjórn.
Nefndarmenn
Formaður og
forseti bæjarstjórnar
Elísabet B. Sveinsdóttir (D)Fyrsti varaforseti
Einar Jóhannes Guðnason (M)Annar varaforseti
Orri Vignir Hlöðversson (B)Varamenn
Guðmundur J. Jónsson (D)
Nína B. Sigurgeirsdóttir (M)
Björg Baldursdóttir (B)Áheyrnarfulltrúar
Eydís Inga Valsdóttir (S)
María E. Steingrímsdóttir (V)Varaáheyrnarfulltrúar
Jónas Már Torfason (S)
Pétur Björgvin Sveinsson (V)Innkaupanefnd fer með málefni opinberra innkaupa hjá Kópavogsbæ.
Nefndin er skipuð fimm fulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í nefndina að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk nefndarinnar er að fara með útboðs- og innkaupamál Kópavogsbæjar, taka ákvarðanir um rammasamninga og stuðla að hagkvæmum og vönduðum innkaupum í samræmi við lög, reglur og innkaupastefnu bæjarins. Nefndin hefur einnig eftirlit með afgreiðslu ábendinga, kvartana og kæra vegna opinberra innkaupa.
Nefndarmenn
Aðalfulltrúar
Guðmundur Jóhann Jónsson (D) – formaður
Ragna Klara Magnúsdóttir (D) – varaformaður
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir (B)
Orri Þór Eggertsson (S)
Elvar Bjarki Helgason (C)Varafulltrúar
Halla Björg Evans (D)
Jóhann Sveinn Friðleifsson (D)
Bergrún Ósk Ólafsdóttir (B)
Kristján B. Ólafsson (S)
Auður Gunnarsdóttir (C)Áheyrnarfulltrúi
Trausti Örn Þórðarson (M)
Varaáheyrnarfulltrúi
Beitir Ólafsson (M)
Starfsfólk
Katrín Árnsdóttir
Loftur Steinar Loftsson
Steinn S. FinnbogasonKjörstjórn Kópavogs ber ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd kosninga í sveitarfélaginu, til alþingis, sveitarstjórna, forseta og sömuleiðis þegar um þjóðaratkvæðagreiðslur er að ræða.
Kjörstjórn er skipuð af bæjarstjórn Kópavogs til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga ber kjörstjórn ábyrgð á því að framboðslistar séu gildir og meðmælendalistar í lagi.
Nefndarmenn
Aðalfulltrúar
Hildur Einarsdóttir (D) – formaður
Leifur Andri Leifsson (D) – varaformaður
Heiðdís Geirsdóttir (B)
Örn Arnarson (S)
Ævar Örn Jóhannsson (M)Varafulltrúar
Kristinn Jakobsson (D)
Haukur Már Hauksson (D)
Jónas Skúlason (B)
Friðmey Jónsdóttir (S)
Thelma Bergmann Árnadóttir (M)Áheyrnarfulltrúi
Arnar Grétarsson (C)
Varaáheyrnarfulltrúi
Andrés Pétursson (C)
Starfsfólk
Gunnar Guðmundsson
Anna Birna SnæbjörnsdóttirMenningar- og mannlífsnefnd fer í umboði bæjarstjórnar með lista-, menningar- og mannlífsmál Kópavogsbæjar. Málefni Gerðarsafns, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Salarins og Bókasafns Kópavogs falla einnig undir verksvið nefndarinnar.
Nefndin er skipuð fimm fulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndina að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk nefndarinnar er að vinna að stefnumótun á sviði lista-, menningar- og mannlífsmála, fylgjast með starfsemi menningarhúsa bæjarins og stuðla að því að menningarstarf og viðburðir höfði til allra bæjarbúa. Nefndin fer jafnframt með úthlutun úr lista- og menningarsjóði Kópavogs og vinnur að varðveislu sögu og menningararfs bæjarins.
Nefndarmenn
Aðalfulltrúar
Elísabet Berglind Sveinsdóttir (D) – formaður
Guðný Svandís Guðjónsdóttir (D) – varaformaður
Sveinn Gíslason (B)
Margrét Tryggvadóttir (S)
Ásgeir Þór Jónsson (C)Varafulltrúar
Helga Guðrún Jónasdóttir (D)
Birgir Ari Óskarsson (D)
Þórunn Matthíasdóttir (B)
Sigrún Skaftadóttir (S)
Þór Hinriksson (C)Áheyrnarfulltrúi
Einar Jóhannes Guðnason (M)
Varaáheyrnarfulltrúi
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir (M)
Starfsfólk
Soffía Karlsdóttir
Védís Hervör ÁrnadóttirMenntaráð fer með málefni barna og ungmenna í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi í umboði bæjarstjórnar. Málefni Skólahljómsveitar Kópavogs, Tónsala og Tónlistarskóla Kópavogs falla einnig undir verksvið ráðsins.
Ráðið er skipað sjö fulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í ráðið að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk menntaráðs er að móta stefnu í skóla-, frístunda- og forvarnamálum, fylgjast með gæðum skóla- og frístundastarfs og stuðla að því að börn og ungmenni fái þá þjónustu og þann stuðning sem þau eiga rétt á. Ráðið hefur jafnframt eftirlit með að lögum og reglum á starfssviði þess sé fylgt og að aðbúnaður og aðstæður til skóla- og frístundastarfs séu viðunandi.
Menntaráð vinnur einnig að samstarfi milli skólastiga og að samþættingu þjónustu í þágu barna og ungmenna.
Sameining verkefna leikskólanefndar og menntaráðs tók gildi við upphaf kjörtímabils nýrrar bæjarstjórnar 2026.
Ráðsmenn
Aðalfulltrúar
Karen Rúnarsdóttir (D) – formaður
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir (D) – varaformaður
Arnór Aðalsteinsson (D)
Hildur Einarsdóttir (D)
Gunnar Sær Ragnarsson (B)
María Ellen Steingrímsdóttir (C)
Bryndís Rut Logadóttir (C)Varafulltrúar
Guðný Svandís Guðjónsdóttir (D)
Jóhann Sveinn Friðleifsson (D)
Berglind Haraldsdóttir (D)
Borgur Þorri Þorbergsson (D)
Heiðdís Geirsdóttir (B)
Irpa Fönn Hlynsdóttir (C)
Elvar Bjarki Helgason (C)Áheyrnarfulltrúar
Björn Þór Rögnvaldsson (S)
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir (M)Varaáheyrnarfulltrúar
Örn Arnarson (S)
Ævar Örn Jóhannsson (M)Starfsfólk
Ingibjörg Pálmadóttir
Anna Birna SnæbjörnsdóttirSkipulags- og umhverfisráð fer með málefni skipulags-, umhverfis-, byggingar- og samgöngumála í Kópavogi samkvæmt lögum og samþykktum bæjarins.
Ráðið er skipað sjö fulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í ráðið að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk ráðsins er að vinna að stefnumótun á starfssviði ráðsins, koma með tillögur til bæjarstjórnar og fylgjast með að stefnum bæjarins sé fylgt og unnið sé að settum markmiðum.
Undir starfssvið ráðsins falla einnig málefni á borð við skipulag útivistarsvæða, götuheiti, umhverfisvernd og umhverfisviðurkenningar.
Ráðsmenn
Formaður nefndar
Varaformaður
Andri Steinn Hilmarsson
Aðalfulltrúar
Hjördís Ýr Johnson (D)
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir (D)
Guðmundur J. Jónsson (D)
Kristinn D. Gissurarson (B)
Eydís Inga Valsdóttir (S)
Sólveig Skaftadóttir (S)Varafulltrúar
Ármann Kr. Ólafsson (D)
Kristinn Jakobsson (D)
Leifur Andri Leifsson (D)
Karen Rúnarsdóttir (D)
Orri Vignir Hlöðversson (B)
Jónas Már Torfason (S)
Orri Thor Eggertsson (S)Áheyrnarfulltrúar
Pétur Björgvin Sveinsson (C)
Beitir Ólafsson (M)Varaáheyrnarfulltrúar
Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson (C)
Einar Jóhannes Guðnason (M)Starfsfólk
Auður D. Kristinsdóttir
Ásthildur Helgadóttir
Karlotta HelgadóttirVelferðar- og mannréttindaráð fer með málefni velferðar- og mannréttinda hjá Kópavogsbæ.
Ráðið er skipað sjö fulltrúum auk áheyrnarfulltrúa og jafnmörgum til vara. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í ráðið að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk ráðsins er að marka stefnu í velferðar- og mannréttindamálum, hafa eftirlit með framkvæmd og gæðum þjónustu, tryggja að þjónustan taki mið af þörfum íbúa og sé í samræmi við lög og reglur, auk þess að fjalla um umsagnir, tillögur og ákvarðanir á málefnasviði sínu. Ráðið hefur jafnframt umsjón með jafnréttismálum, vinnur að aðgerðum gegn mismunun og veitir árlega jafnréttisviðurkenningu
Ráðsmenn
Aðalfulltrúar
Björg Baldursdóttir (B) – formaður
Sigrún Bjarnadóttir (D) – varaformaður
Kristinn Jakobsson (D)
Elísabet Berglind Sveinsdóttir (D)
Hannes Þórður Hafstein (D)
Sólveig Skaftadóttir (S)
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir (C)Varafulltrúar
Haukur Már Hauksson (D)
Gunnlaugur Ragnarsson (D)
Signý Skúladóttir (D)
Jóhann Sveinn Friðleifsson (D)
Svava Halldóra Friðgeirsdóttir (B)
Jónas Már Torfason (S)
Bryndís Rut Logadóttir (C)Áheyrnarfulltrúi
Thelma Bergmann Árnadóttir (M)
Varaáheyrnarfulltrúi
Trausti Örn Þórðarson (M)
Starfsfólk
Sigrún Þórarinsdóttir
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Samráðsnefndir
Samráðsnefndir eru vettvangur fyrir samráð og skoðanaskipti milli Kópavogsbæjar og hagsmunaaðila eða íbúa. Hlutverk þeirra er að stuðla að samtali, miðla þekkingu og veita ráðgjöf um tiltekin málefni. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í samráðsnefndir til fjögurra ára.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks starfar í umboði bæjarráðs og er markmið þess að bæta þjónustu við fatlað fólk í Kópavogi með virkri aðkomu fatlaðs fólks að skipulagi og mótun þjónustunnar.
Ráðið er skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara. Þrír fulltrúar eru skipaðir af bæjarstjórn og fjórir eru tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, tveir af Landssamtökunum Þroskahjálp og tveir af Öryrkjabandalagi Íslands.
Hlutverk notendaráðsins er að vera formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við bæjarstjórn, nefndir og ráð Kópavogsbæjar um þjónustu við fatlað fólk, framkvæmd hennar og þróun. Ráðið stuðlar að skoðanaskiptum og miðlun upplýsinga milli fatlaðs fólks og bæjaryfirvalda um stefnu og framkvæmd mála sem varða hagsmuni fatlaðs fólks.
Notendaráðið fjallar ekki um málefni einstaklinga.
Ráðsmenn
Aðalfulltrúar
Signý Skúladóttir (D)
Arnar Þór Pétursson (D)
Trausti Örn Þórðarson (M)Varafulltrúar
Haukur Már Hauksson (D)
Bergur Þorri Þorbergsson (D)
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir (M)Starfsmenn
Jón Kristján Rögnvaldsson
Kristín Þyrí ÞorsteinsdóttirUngmennaráð heyrir undir bæjarstjórn Kópavogs. Ráðið er skipað 15 fulltrúum á aldrinum 13-20 ára.
Ráðið er skipað níu fulltrúum sem tilnefndir eru frá grunnskólum og félagsmiðstöðvum (sameiginlegur fulltrúi grunnskóla og félagsmiðstöðvar), tveimur fulltrúum frá Menntaskólanum í Kópavogi og fjórum fulltrúum frá ungmennahúsinu Molanum. Bæjarstjórn kýs svo tvo fulltrúa úr sínum röðum sem eru tengiliðir bæjarstjórnar við Ungmennaráð Kópavogs.
Hlutverk ungmennaráðs er að skapa ungu fólki vettvang til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Ráðið stuðlar jafnframt að fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og gætir hagsmuna barna og ungmenna í Kópavogi. Ungmennaráð veitir einnig bæjarstjórn og nefndum ráðgjöf um málefni barna og ungmenna.
Ráðsmenn
Tengiliðir bæjarstjórnar
Elísabet Berglind Sveinsdóttir (D)
Jónas Már Torfason (S)Varatengiliðir bæjarstjórnar
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Eydís Inga Valsdóttir (S)Starfsmaður
Áslaug Einarsdóttir – ritari nefndar
Ungmennaráðsfulltrúar
Andrea Marý Torfadóttir
Bára Freydís Þórðardóttir
Dagbjartur Bergmann Jóhannsson
Emma Lind Hitchon
Emilía Ísis Nökkvadóttir
Katrín Hvönn Pétursdóttir
Klara Rós Bergmann
Magnús Ingi Árnason
María Motoc
Níels Jóhann Júlíusson
Óðinn Helgi Pálsson
Rebecca Ann Ramsay
Styrmir Steinn Sigmundsson
Tinna Líf Teitsdóttir
Zuzanna BodaÖldungaráð starfar í umboði bæjarráðs og er markmið þess að bæta þjónustu við eldra fólk í Kópavogi með virkri aðkomu þeirra að skipulagi og mótun þjónustunnar.
Ráðið er skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara. Þrír fulltrúar eru skipaðir af bæjarstjórn, þrír eru tilnefndir af Félagi eldri borgara í Kópavogi og einn fulltrúi kemur frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Hlutverk öldungaráðs er að vera formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við bæjarstjórn, nefndir og ráð Kópavogsbæjar um þjónustu við eldra fólk, framkvæmd hennar og þróun. Ráðið stuðlar að skoðanaskiptum og miðlun upplýsinga milli eldra fólks og bæjaryfirvalda um málefni sem varða hagsmuni þeirra.
Öldungaráð fjallar ekki um málefni einstaklinga.
Ráðsmenn
Aðalfulltrúar
Helga Guðrún Jónasdóttir (D)
Bergur Þorri Þorbergsson (D)
Jónas Már Torfason (S)Varafulltrúar
Sigrún Bjarnadóttir (D)
Ragna Klara Magnúsdóttir (D)
Eydís Inga Valsdóttir (S)Starfsmenn
Jón Kristján Rögnvaldsson
Sigrún Þórarinsdóttir
Samstarfsnefndir
Samstarfsnefndir eru skipaðar fulltrúum Kópavogsbæjar og annarra aðila sem vinna að sameiginlegum verkefnum eða málefnum. Hlutverk þeirra er að efla samstarf, samhæfa verkefni og stuðla að sameiginlegri stefnumótun og framkvæmd. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í samstarfsnefndir til fjögurra ára.
Neyðarstjórn starfar samkvæmt viðbragðsáætlun sveitarfélagsins og er virkjuð á hættu- og neyðarstigum almannavarna eftir því sem þörf krefur. Bæjarstjóri er formaður neyðarstjórnar.
Í neyðarstjórn sitja fulltrúar frá helstu sviðum og stoðþjónustu Kópavogsbæjar ásamt tilnefndum varamönnum. Neyðarstjórnin vinnur meðal annars með almannavörnum, aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Hlutverk neyðarstjórnar Kópavogsbæjar er að samhæfa aðgerðir og grípa til neyðarráðstafana þegar neyðarástand skapast. Markmið hennar er að tryggja öryggi og velferð íbúa, forgangsraða lögbundinni þjónustu og samfélagslega mikilvægri starfsemi og lágmarka samfélagslegan skaða.
Aðalfulltrúi
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Varafulltrúi
Hjördís Yr Johnson (D)
Aðalfulltrúi
Guðmundur Jóhann Jónsson (D)
Varafulltrúi
Andri Steinn Hilmarsson (D)
Stjórn Tónlistarskóla Kópavogs starfar í umboði sjálfseignarstofnunarinnar Tónlistarskóla Kópavogs. Í stjórninni eiga fimm menn sæti. Þar af skipar bæjarstjórn Kópavogs tvo fulltrúa að loknum sveitarstjórnarkosningum hverju sinni.
Stjórn Tónlistarskóla Kópavogs hefur eftirtalin verkefni:
- Að ráða skólastjóra að skólanum.
- Að samþykkja fjárhags- og starfsáætlun skólans, fylgja henni fram og bera ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við lög og reglur um starfsemi tónlistarskólans.
Eftirtalin eiga sæti í stjórn Tónlistarskóla Kópavogs:
Svæðisskipulagsnefnd vinnur svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, viðheldur því og annast reglubundna endurskoðun þess.
Nefndin starfar í umboði og undir yfirstjórn hlutaðeigandi sveitarfélaga. Hver sveitarstjórn skipar tvo fulltrúa í nefndina að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlutverk svæðisskipulagsnefndar er að fylgjast með þróun og framkvæmd gildandi svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, fjalla um og afgreiða breytingar á því og annast reglubundna heildarendurskoðun og vinna nýtt svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
Umdæmisráð
Bæjarstjórn skipar í umdæmisráð til fimm ára.
Í ráðinu sitja þrír aðalfulltrúar og jafnmargir varamenn.
Aðrar nefndir og starfshópar
Bæjarráð hefur heimild til skipunar nefnda sem vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndar er lokið. Bæjarráð getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.