Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Atvinnu- og þróunarráð - 8. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Viggó Einar Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Björnsson - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurður Björnsson

Dagskrá fundar

01

Samstarfsvettvangur fyrirtækja og stofnana

Fyrir liggja til upplýsingar dæmi um stofnskjöl fyrir sjálfseignastofnanir og einkahlutafélög

Þann 1. nóvember s.l. var haldinn kynningarfundur um stofnun samstarfsvettvangs um markaðsmál í Kópavogi. Um 100 manns mættu á fundinn og lýsir ráðið ánægju sinni með fundinn.Fyrir liggja upplýsingar um mismunandi félagsform fyrirtækja og stofnana. Undir þessum lið situr fundinn Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður.Bæjarlögmaður fór yfir og útskýrði mismunandi félagaform og siðan var ítarlega rætt um sjálfseignastofnanir, en algengast er að það félagsform sé notað hjá markaðsskrifstofum og atvinnuþróunarfélögum víða um land. Bæjarlögmaður vék af fundi kl. 17.10. Ráðið samþykkir að hefja vinnu við gerð stofnskjala fyrir fyrirhugað félag með það að markmiði að stofnfundur verði haldinn eigi síðar en um miðjan janúar 2013.

02

Atvinnu- og þróunarráð - önnur mál

Formlega hefur verið óskað eftir upplýsingum frá sviðsstjóra Velferðarsviðs um starfsemi Atvinnutorgs og Vinnandi vegar. Svör hafa ekki borist. Einnig hefur VMST verið send fyrirspurn um ráðstafanir vegna erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá. Ekkert svar hefur borist. Skrifstofustjóra er falið að ýta á eftir því að svör berist.