Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Atvinnu- og þróunarráð - önnur mál

Málsnúmer: 1205470

Ferill máls

01

Atvinnu- og þróunarráð - 15. fundur

Rætt um samstarf Atvinnuu- og þróunarráðs og Markaðsstofu Kópavogs. Ráðið óskar eftir því að fá til upplýsingar fundrgerðir Markaðsstofunnar. Jafnframt ítrekar ráðið að ráðinu verið sett erindisbréf. Ráðið ræddi vandann á húsnæðismarkaði og hugmyndir um úrbætur. Ákveðið að taka málið upp á ný á næsta fundi.

02

Atvinnu- og þróunarráð - 14. fundur

Ráðið ítrekar fyrri ósk sína um að Atvinnu- og þróunarráði verði sett erindisbréf.

03

Atvinnu- og þróunarráð - 13. fundur

A) Lagðar voru fram til kynningar atvinnuleysistölur frá VMST. B) Lagðar voru fram til kynningar upplýsingar um Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á vegum Innovit nýsköpunar og frumkvöðlaseturs.

04

Atvinnu- og þróunarráð - 12. fundur

Kynning frá Höfuðborgarstofu

Til fundarins komu þrír fulltrúar Höfuðborgarstofu og gerðu grein fyrir starfsemi stofunnar, aukinheldur sem gerð var grein fyrir ávinningi Kópavogsbæjar af samstarfinu.

05

Atvinnu- og þróunarráð - 11. fundur

Fundarritari gerði grein fyrir upplýsingum um Vinnandi Veg í samræmi við bókun 10. fundar ráðsins. Ráðið óskar eftir upplýsingum um aðkomu Kópavogsbæjar að starfsemi Höfuðborgarstofu og ávinning bæjarins af starfseminni.

06

Atvinnu- og þróunarráð - 10. fundur

Umbeðin gögn um Atvinnutorg og Vinnandi veg lögð fram. Tillaga atvinnu- og þróunarráðs:"Atvinnu- og þróunarráð óskar eftir nánari upplýsingum í samræmi við umræður á fundinum vegna fyrirkomulags Vinnandi vegar." Afgreiðsla: Samþykkt einróma.

07

Atvinnu- og þróunarráð - 9. fundur

<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt 36pt" class=MsoNormal><SPAN style="FONT-FAMILY: "Arial","sans-serif"; FONT-SIZE: 11pt; mso-ansi-language: IS">Bæjarlögmanni falið að afla upplýsinga um hugmyndir um nýtingu Kópavogsbæjar á húsnæði Skógræktarfélags Kópavogs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></SPAN></P>

08

Atvinnu- og þróunarráð - 8. fundur

Formlega hefur verið óskað eftir upplýsingum frá sviðsstjóra Velferðarsviðs um starfsemi Atvinnutorgs og Vinnandi vegar. Svör hafa ekki borist. Einnig hefur VMST verið send fyrirspurn um ráðstafanir vegna erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá. Ekkert svar hefur borist. Skrifstofustjóra er falið að ýta á eftir því að svör berist.

09

Atvinnu- og þróunarráð - 4. fundur

A) Fyrir liggur bréf frá Breiðabliki þar sem óskað er eftir aðkomu bæjarins að því að gera bráðabirgðatjaldstæði á Kópavogstúni vegna Símamótsins í knattspyrnu sem haldið verður 12. - 15. júlí. Kostnaður liggur ekki fyrir.Ráðið tekur jákvætt í málið en vísar til bæjarráðs þar sem ráðið hefur ekki yfir fjárheimildum að ráða. B) Viðurkenningar til fyrirtækja. Ráðið lýsir áhuga á samstarfi við Umhverfis- og samgöngunefnd og Jafnréttis- og mannréttindanefnd um veitingu viðurkenninga til fyrirtækja. Hugmyndin er að auglýst verði sameiginlega eftir tilnefningum og að nefndirnar standi sameiginlega að athöfn vegna viðurkenninganna. C) Ráðið óskar eftir upplýsingum frá Velferðarsviði um starfsemi Atvinnutorgs fyrir ungt fólk. Hve margir hafa notið þjónustunnar og hver hefur árangur af starfseminni verið?

10

Atvinnu- og þróunarráð - 3. fundur

Rætt um veitingar viðurkenninga til fyrirtækja.

11

Atvinnu- og þróunarráð - 2. fundur

A) Sigurjón óskar eftir því að fyrir næsta fund verði lagðar sundurgreindar upplýsingar um atvinnuleysi í Kópavogi.B) Einnig óskar Sigurjón eftir upplýsingum um fjölda umsókna um sumarstörf og hversu mörg störf voru í boði og hvernig þau nýtast.C) Ráðið hefur áhuga á að árlega verði veitt viðurkenning til fram úr skarandi atvinnustarfsemi í bænum.D) Upplýst er að gerð erindisbréfs fyrir ráðið er í eðlilegum farvegi.