Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Atvinnu- og þróunarráð - 14. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Viggó Einar Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Björnsson - starfsmaður nefndar
  • Ólafur Örn Karlsson

Ritari

  • Sigurður Björnsson

Nýráðinn framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs mætir á fundinn til skrafs og ráðagerða varðandi fyrstu verkefni Markaðsstofunnar.

Dagskrá fundar

01

Markaðsstofa - Samstarfsvettvangur fyrirtækja og stofnana

Undir þessum lið sitja fundinn Áshildur Bragadóttir, nýráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs og Theódóra Þorsteinsdóttir formaður stjórnar Markaðsstofu.Áshildur dreifði á fundinum drögum af starfsáætlun Markaðsstofu og þær Thódóra fjölluðu síðan um drögin og þær hugmyndir sem uppi eru um starfsemina. Fjörugar umræður urður um Markaðsstofuna og lýsa ráðsmenn mikilli ánægu með fyrstu skrefin sem tekin hafa verið. Áshildur og Theódóra viku síðan af fundi.

02

Atvinnu- og þróunarráð - önnur mál

Ráðið ítrekar fyrri ósk sína um að Atvinnu- og þróunarráði verði sett erindisbréf.