Atvinnu- og þróunarráð - 5. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Viggó Einar Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Sigurjón Jónsson - aðalfulltrúi
- Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
- Ýr Gunnlaugsdóttir - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
ATHUGIÐ. Fundurinn hefst með heimsókn til OK HULL að Vesturvör 36 kl. 16.00.
Dagskrá fundar
Björn Jónsson forstjóri OK Hull ehf. tók á móti ráðinu og kynnti starfsemi fyrirtækisins í Vesturvör.
Atvinnu- og þróunarráð þakkar góða kynningu á fyrirtækinu og framtíðaráformum. Ráðið fagnar þeirri nýsköpun sem á sér stað innan fyrirtækisins og áformum um uppbyggingu þess.
Atvinnu- og þróunarráð samþykkir að haldinn skuli fundur með fyrirtækjum í bænum þar sem formlega verði unnið að stofnun félags. Á næsta fundi ráðsins verði lagt fram svar við því hvort fjármagn rúmist innan fjárhagsáætlunar ársins vegna þessa verkefnis.
Erindi framkvæmdastjóra Meet in Reykjavik, dags. 6. júlí, varðandi boð um aðild að starfi samtakanna. Erindinu var vísað úr bæjarráði til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs.
Atvinnu- og þróunarráð telur ekki rétt að Kópavogsbær taki þátt í starfi samtakanna að svo komnu máli.
Lögð fram lokaskýrsla starfshópsins, dags. 22. júní, ásamt fylgiskjölum. Bæjarstjórn vísaði skýrslunni til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs.
Atvinnu- og þróunarráð tekur undir tillögu starfshópsins og hvetur bæjarráð til að samþykkja hana.