Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Kópavogsfélagið. Hressingarhælið, Kópavogsbærinn og Kópavogstún.
Málsnúmer: 1205409
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1098. fundur
Lögð fram tillaga stjórnar Kópavogsfélagsins, dags. 4. júní, um starfsemi í byggingum á Kópavogstúni. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu stjórnar Kópavogsfélagsins með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2734. fundur
Lögð fram tillaga stjórnar Kópavogsfélagsins, dags. 4. júní um starfsemi í byggingum á Kópavogstúni.
Arnþór Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:
03
Bæjarráð - 2699. fundur
Frá framkvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs, dags. 1. ágúst, umsögn um tillögu stjórnar Kópavogsfélagsins og tillögu Kristins Dags Gissurarsonar.
Bæjarráð vísar umsögninni til stjórnar Kópavogsfélagsins til úrvinnslu.Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:"Ég legg áherslu á að stjórn Kópavogsfélagsins kanni möguleika á búfjárhaldi og jafnvel að Kópavogsbærinn verði lögbýli.Ómar Stefánsson"
04
Bæjarráð - 2693. fundur
Tillaga stjórnar Kópavogsfélagsins um starfsemi í byggingunum á Kópavogstúni og umhverfi bygginganna, mál sem vísað var til bæjarráðs á fundi bæjarstjórnar 25. júní.
Bæjarráð sendir tillögurnar ásamt tillögu Kristins Dags Gissurarsonar, fulltrúa í stjórn Kópavogsfélagsins, til Markaðsstofu Kópavogs til umsagnar. Stjórn Markaðsstofu og stjórn Kópavogsfélagsins eigi sameiginlegan fund um tillögurnar.
05
Bæjarstjórn - 1080. fundur
Frá stjórn Kópavogsfélagsins, dags. 14. júní, tillaga um starfsemi í byggingunum á Kópavogstúni og umhverfi bygginganna.
Hlé var gert á fundi kl. 22:10. Fundi fram haldið kl. 22:11
Tillaga frá Gunnari I. Birgissyni:
"Lagt er til að umhverfissvið kostnaðarreikni framkomnar tillögur Kópavogsfélagsins um byggingu og notkun Hressingarhælisins, gamla Kópavogsbæjarins með tilheyrandi útihúsum, ásamt bílastæðum og fleira. Umhverfissvið skili niðurstöðum til bæjarstjórnar í september n.k."
Tillagan felld með sex atkvæðum gegn fimm og hjásetu eins fulltrúa.
Tillaga frá Rannveigu H. Ásgeirsdóttur:
"Lagt er til að málinu verði vísað til bæjarráðs."
Tillagan samþykkt með sjö atkvæðum og hjásetu fjögurra fulltrúa.
06
Bæjarráð - 2685. fundur
Frá skipulagsstjóra, lagðar fram fundargerðir Kópavogsfélagsins 1. fundar frá 3. október 2012, 2. fundar frá 25. október 2012, 3. fundar frá 31. október 2012, 4. fundar frá 7. nóvember og 5. fundar frá 19. desember 2012.
Lagt fram. Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:"Ég minni á að gamli Kópavogsbærinn var með dýrahald.Ómar Stefánsson" Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:"Óska eftir því að fundargerðir verði lagðar fyrir bæjarráð strax að loknum fundum.Guðríður Arnardóttir"
07
Bæjarstjórn - 1072. fundur
Lista- og menningarráð tilnefndi Unu Björgu Einarsdóttur varamann í stjórn Kópavogsfélagsins, en bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu, sbr. lið 7 í fundargerð frá 21. febrúar.
Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna Unu Björgu Einarsdóttur varamann í stjórn Kópavogsfélagsins með níu atkvæðum en tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
08
Bæjarstjórn - 1072. fundur
Bæjarstjórn tilnefnir formann stjórnar Kópavogsfélagsins.
Hjálmar Hjálmarsson lagði til að kjöri formanns verði vísað til stjórnar Kópavogsfélagsins. Bæjarstjórn tilnefnir Margréti Björnsdóttur formann stjórnar Kópavogsfélagsins.
09
Bæjarráð - 2675. fundur
Lista- og menningarráð tilnefnir Unu Björg Einarsdóttur varamann í stjórn Kópavogsfélagsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10
Lista- og menningarráð - 13. fundur
Ráðið þarf að tilnefna varamann í stjórn Kópavogsfélagsins.
Una Björg Einarsdóttir er tilnefnd sem varamaður í stjórn Kópavogsfélagsins.
11
Bæjarstjórn - 1071. fundur
Skipan bæjarstjórnar Kópavogs í stjórn Kópavogsfélagsins, félags áhugafólks um endurreisn Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins skv. tilnefningum umhverfis- og samgöngunefndar, atvinnu- og þróunarráðs og skipulagsnefndar.
Bæjarstjórn Kópavogs skipar eftirtalda í stjórn félagsins:Garðar Heimi GuðjónssonMargréti BjörnsdótturKristinn Dag Gissurarson Kosningu formanns er frestað.
12
Skipulagsnefnd - 1222. fundur
Tilnefning fulltrúa Skipulagsnefndar í stjórn Kópavogsfélagsins, félags áhugafólks um endurreisn Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins.
Skipulagsnefnd samþykkir að tilnefna Kristinn D. Gissurarson sem fulltrúa nefndarinnar í stjórn Kópavogsfélagsins.
13
Umhverfis- og samgöngunefnd - 30. fundur
Tilnefning fulltrúa umhverfis- og samgöngunefndar í stjórn Kópavogsfélagsins, félag áhugafólks um endurreisn Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins.
Umhverfis- og samgöngunefnd tilnefnir Margréti Björnsdóttur sem fulltrúa í stjórn Kópavogsfélagsins.
14
Atvinnu- og þróunarráð - 12. fundur
Tillaga atvinnu- og þróunarráðs:"Atvinnu og þróunarráð tilnefnir Garðar Heimi Guðjónsson sem fulltrúa ráðsins í stjórn Kópavogsfélagsins, félags áhugafólks um endurreisn Hressingarhælisins og Kópavogsbæjarins." Afgreiðsla: Samþykkt einróma
15
Bæjarstjórn - 1070. fundur
Tillögur starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið.
Til máls tóku Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Margrét Björnsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Arnþór Sigurðsson, Hjálmar Hjálmarsson, Ómar Stefánsson, Gunnar Ingi Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Aðalsteinn Jónsson og Margrét Björnsdóttir.Bæjarstjórn samþykkir einróma tillögur starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið með þeirri breytingu að stofnfundur skuli auglýstur eigi síðar en 20. febrúar 2013.
16
Bæjarráð - 2670. fundur
Tillögur starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið.
Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:"Ég geri athugasemd við hversu seint þessar tillögur eru lagðar fyrir bæjarráð.Hjálmar Hjálmarsson"Arnþór Sigurðsson tekur undir bókun Hjálmars Hjálmarssonar. Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
17
Bæjarstjórn - 1063. fundur
Bæjarráð vísar tillögum starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$
Bæjarstjórn samþykkir tillögu starfshópsins einróma með eðlilegri hnikun á dagsetningum og þeirri breytingu að sérstakur verkefnisstjóri verði ekki ráðinn, en umhverfissviði falið að veita starfshópnum aðstoð og ráðgjöf.
18
Bæjarráð - 2654. fundur
Mál sem frestað var í bæjarráði 23. ágúst sl. Atvinnu- og þróunarráð hvetur bæjarráð til að samþykkja tillögur starfshópsins.
Bæjarráð vísar tillögum starfshóps um Kópavogstún, Kópavogsbæinn og Kópavogshælið til afgreiðslu bæjarstjórnar.Bókun Ómars Stefánssonar: "Ég legg áherslu á að nefndin hafi í huga að það var búskapur á jörðinni Kópavogur og það kom fram töluverður áhugi á íbúafundi sem haldinn var 7. júní 2012 að það verði horft til þess í framtíðaruppbyggingu gamla býlisins."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Þessi tillaga var lögð fyrir bæjarstjórn í júní sl. og lýsir það ótrúlegu sleifarlagi bæjarstjóra að það taki þrjá mánuði að koma málinu á rekspöl."Ármann Kr. Ólafsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:26Fundi fram haldið kl. 9:46Hjálmar Hjálmarsson óskar eftir fundarhléi kl. 9:46Fundi fram haldið kl. 9:50Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Því skal haldið til haga að á vakt Hjálmars Hjálmarssonar þar sem hann var í meirihluta í ríflega 20 mánuði þá gerðist nákvæmlega ekki neitt í þessu máli annað en að leggja til að stofnuð yrði nefnd. Síðan nýr meirihluti tók við hefur nefndin verið stofnuð, hún unnið mikið og gott starf og skilað skýrslu. Sú skýrsla fékk umfjöllun í bæjarstjórn og var vísað til bæjarráðs þar sem hún var tekin til umræðu 23. ágúst sl. eftir að álit atvinnu- og þróunarráðs lá fyrir. Í öllu þessu ferli kemur inn í sumarfrí bæjarstjórnar og starfsfólks bæjarins. Hér er um að ræða verkefni þar sem allir hafa unnið í sátt bæði meiri- og minnihluti . Að kalla þessa afgreiðslu bæjarstjóra sleifarlag er með hreinum ólíkindum, ekki síst frá fulltrúa sem t.d. fékk það hlutverk að fara fyrir starfshópum t.d. um leiðarkerfi strætó og fundarsköp bæjarstjórnar en varð ekkert úr verki, þar sem aldrei var kallað til fyrstu funda."Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Ég geri athugasemdir við orðbragð bæjarstjóra í minn garð í fundarhléi."Ólafur Þór Gunnarsson óskar eftir fundarhlé kl. 9:52Fundi fram haldið kl. 9:54Bókun Ármanns Kr. Ólafssonar:"Að tala um sleifarlag var niðrandi í þessu samhengi þar sem hratt hefur verið unnið í þessu máli og hraðar heldur en Hjálmar kynntist þegar hann var í meirihluta." Bókun Hjálmars Hjálmarssonar:"Bókun bæjarstjóra vísa ég alfarið til föðurhúsanna. Ég kýs að svara ekki þessari staðleysu í bæjarráði og óska eftir því að málið verði rætt á næsta fundi bæjarstjórnar."
19
Bæjarráð - 2651. fundur
Atvinnu- og þróunarráð hvetur bæjarráð til að samþykkja tillögur starfshópsins.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
20
Atvinnu- og þróunarráð - 5. fundur
Lögð fram lokaskýrsla starfshópsins, dags. 22. júní, ásamt fylgiskjölum. Bæjarstjórn vísaði skýrslunni til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs.
Atvinnu- og þróunarráð tekur undir tillögu starfshópsins og hvetur bæjarráð til að samþykkja hana.
21
Bæjarráð - 2648. fundur
Lögð fram lokaskýrsla starfshóps, dags. 22. júní, ásamt fylgiskjölum. Bæjarstjórn samþykkti einróma á fundi sínum 26. júní sl. að vísa skýrslunni til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs og til bæjarráðs til úrvinnslu.
Lagt fram.
22
Bæjarstjórn - 1061. fundur
8. fundur
Til máls tóku Margrét Björnsdóttir, Gunnar Ingi Birgisson, Ólafur Þór Gunnarsson, Ómar Stefánsson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri og Margrét Björnsdóttir.Hlé var gert á fundi kl. 19:00. Fundi var fram haldið kl. 19:30.Kl. 19:30 vék Aðalsteinn Jónsson af fundi og tók Karen Halldórsdóttir sæti hans. Til máls tóku Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Ingi Birgisson, sem óskaði eftir upplýsingum um áfallinn kostnað vegna verkefnisins fyrstu sex mánuði ársins, Margrét Björnsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, og lagði til að greinargerðinni yrði vísað til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs og til bæjarráðs til úrvinnslu, Ómar Stefánsson og Hjálmar Hjálmarsson, um lið 1.Fundargerðin afgreidd án frekari umræðu.
23
Bæjarstjórn - 1061. fundur
Lögð fram lokaskýrsla starfshópsins, dags. 22. júní, ásamt fylgiskjölum.
Bæjarstjórn samþykkir einróma að vísa skýrslunni til umsagnar atvinnu- og þróunarráðs og til bæjarráðs til úrvinnslu.
24
Bæjarráð - 2646. fundur
8. fundur
Bæjarráð vísar fundargerðinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
25
Bæjarráð - 2646. fundur
Lögð fram skýrsla starfshópsins, dags. 20. júní.
26
Bæjarstjórn - 1060. fundur
1 - 7. fundur
Fundargerðirnar afgreiddar án umræðu.
27
Bæjarráð - 2643. fundur
5. fundur 9/5, 6. fundur 15/5 og 7. fundur23/5.
Lagt fram.
28
Bæjarráð - 2642. fundur
1. fundur
Lagt fram.
29
Bæjarráð - 2642. fundur
2. fundur
Lagt fram.
30
Bæjarráð - 2642. fundur
3. fundur
Lagt fram.
31
Bæjarráð - 2642. fundur
4. fundur
Lagt fram.