Bæjarráð - 2890. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fjármálastjóri gerir grein fyrir lokadrögum að fjárhagsáætlun fyrir fyrri umræðu.
Frá fjármálastjóra, dags. 7. nóvember, lagt fram erindi f.h. lóðarhafa Austurkórs 85, Burstabæ ehf. , um heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.
Frá bæjarlögmanni, dags. 7. nóvember, lögð fram umsókn um lóðina Vesturvör 50 frá Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar að gefa Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Vesturvör 50 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bókun:
Undirritaður telur starfssemi ekki samræmast áformum verðlaunatillögu Nordic Built keppninnar.
Pétur Hrafn Sigurðssonar
Frá Bridgefélagi Kópavogs, dags. 26. október, lögð fram beiðni um styrk að upphæð kr. 116.000.- til að endurnýja borðtölvur (Brigde Mate) félagsins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra stjórnsýslusviðs til afgreiðslu.
05
Óskað eftir samstarfi við að bjóða upp á Mini Bridge í frístundaheimilum grunnskóla Kópavogs
Frá Brigdefélagi Kópavogs, dags. 26. október, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir samstarfi við að bjóða upp á Mini Bridge í frístundaheimilum grunnskóla Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til afgreiðslu.
Frá BRYNJU Hússjóði ÖBÍ, dags. 30. október, lögð fram umsókn um stofnframlag 2017.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til úrvinnslu bæjarstjóra.
Frá EBÍ, dags. 30. október, lögð fram tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2017.
Lagt fram.
Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 31. október, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir leyfi fyrir flugeldasölu á þremur stöðum í bænum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 27 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
11.11 - 1711060 - Bláfjöll, lagnir fyrir rafmagn og ljósleiðara.
Lagt fram erindi Isavia dags. 2. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að leggja lagnir fyrir rafmagn og ljósleiðara í Bláfjöllum.
Isavia er með þrjú hús í Bláfjöllum, tvö (sendahús og rafstöðvarhús) eru fyrir ofan skíðasvæðið í Kóngsgili og er eitt (móttökuhús) fyrir ofan skíðasvæðið í Suðurgili. Í húsunum er hýstur fjarskiptabúnaður fyrir talsamskipti við flugvélar. Milli senda og móttöku húsanna er um það bil 455m og liggur rafstrengur og símstrengur þar á milli. Strengir milli húsanna eru orðnir lélegir og er kominn tími til að endurnýja þá með nýjum raflögnum og ljósleiðara.
Isavia vill því sækja um leyfi til að grafa skurð milli húsanna (sjá mynd í viðhengi)á sama stað og núverandi lagnir eru í jörðu og leggja í skurðinn þrjú 110 mm rör. Einnig þarf að koma fyrir 3 tengibrunnum, einn verður við móttökuhús og tveir á milli húsanna, en 150 metrar verða á milli tengibrunnana.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Ása Richardsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
11.13 - 16091001 - Brú yfir Fossvog, fyrir gangandi, hjólandi og almenningsvagna. Tillaga að breyttu aðalskipulagi.
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Tillagan gerir ráð fyrir að á göngu- og hjólabrú yfir Fossvog, sem gildandi aðalskipulag gerir nú þegar ráð fyrir, verði einnig heimilaður akstur almenningsvagna, til samræmis við skipulagsákvæði um sömu brú í aðalskipulagi Reykjavíkur. Tillagan er sett fram í greinargerð Alta dags. 3. nóvember 2017.
Á fundi skipulagsráðs 29. maí 2017 var lögð fram vinnslutillaga, dags. 29. maí 2017, að ofangreindri breytingu og samþykkti skipulagsráð að hún skuli kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillagan var kynnt frá 16. september 2017. Enn fremur var vinnslutillagan send umsagnaraðilum sbr. erindi skipulagsstjóra dags. 15. september 2017. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni sbr. erindi dags. 26. október 2017; frá Garðabæ sbr. erindi dags. 3. október 2017 og frá Reykjavíkurborg sbr. erindi dags. 2. október 2017. Efnt var til opins húss á skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs 28. september 2017 þar sem vinnslutillagan var kynnt þeim er þess óskuðu. Tveir mættu á kynninguna.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar og að hún verði auglýst í samræmi við 31. gr. ofangreindra laga.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
- Brú yfir Fossvog. Tillaga að breyttu aðalskipulagi. 6. nóv. 2017
- Frá Vegagerðinni.
- Frá Garðabæ.
- Gestabók frá opnu húsi í Fannborg 6, 28. september 2017.
- Frá Reykjavíkurborg ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags Rvk.
- Brú fyrir Fossvog. Bréf til umsagnaraðila. Vinnslutillaga.
- A1252-002-U01-ASKbreyting-Fossvogsbrú
- Skipulagsráð - 9 (29.5.2017) - Brú yfir Fossvog, fyrir gangandi, hjólandi og almenningsvagna. Breytt aðalskipulag. Vinnslutillaga.
11.14 - 1705661 - Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114. Svæði 12. Deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Teiknistofunnar Traðar að deiliskipulagi fyrir reit 12 í skipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði Kársness. Nánar tiltekið nær tillagan til götureitar sem afmarkast af Nesvör til norðurs, Kársnesbraut til austurs, Þinghólsbraut til suðurs og Hafnarbraut til vesturs. Í tillögunni felst að núverandi byggingar að Hafnarbraut 4, 6, 8 og 10 verða rifin og nýtt fjögurra hæða íbúðarhúsnæði með kjallara byggt í þeirra stað. Á lóðinni Hafnarbraut 4-8 verða að hámarki 38 íbúðir og áætlað nýtingarhlutfall 1,97 (2,46 með kjallara) og 1,3 bílastæði á íbúð. Á lóð Hafnarbrautar 10 eru ráðgerðar 40 íbúðir áætlað nýtingarhlutfall 1,83 (2,28 með kjallara) og 1,3 bílastæðum á íbúð.
Á lóðunum Kársnesbraut 108-114 er í tillögunni gert ráð fyrir að byggja eina íbúðarhæð ofan á núverandi atvinnuhúsnæði með samtals 34 íbúðum. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 5. maí 2017. Þá greint frá samráðsfundi með lóðarhöfum ofangreindra lóða sem haldinn var 9. maí 2017 á skipulags- og byggingardeild. Athugasemdafresti lauk 16. október 2017. Athugasemdir bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar við fram komnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 3. nóvember 2017.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
- Hafnarbraut 2-10, Karsnesbraut 108-114 skipulagsuppdrattur august 17
- Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114 umsögn nov 17
- Ábending Kársnesbraut 114
- Kársnes þróunarsvæði svæði 12. haldinn 9. maí 2017
- 20171016_athugasemdir vegna deiliskipulags Hafnarbraut 2
- Frá Umhverfisstofnun.
- Frá Isavia.
- Frá Samgöngustofu. Hafnarbraut 2-10 og Kársnesbraut 108-114
- Minnisblað_Kársnes_svæði12_umhverfisahrif
- Skipulagsráð - 16 (16.10.2017) - Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114. Svæði 12. Deiliskipulag.
11.4 - 1403199 - Laxalind 15. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju erindi Tómasar Þorvaldsonar hdl. dags. 17. mars 2014 f.h. lóðarhafa Laxalindar 15 að breyttu deiliskipulagi Laxalindar 15. Þá lögð fram minnisblöð lögræðideildar Kópavogsbæjar þar sem m.a. er tekin saman forsaga málsins, breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar og um framkvæmdir á lóðinni Laxalind 15. Eru minnisblöðin dags. 6. júní 2017 og 5. október 2017.
Á árunum 2011 og 2012 var farið í byggingarleyfisskyldar framkvæmdir á lóðinni nr. 15 við Laxalind, en þar reisti lóðarhafi tvö hús utan byggingarreits sbr. gildandi deiliskipulag og háa skjólgirðingu á lóðamörkum Laxalindar 15 og 17. Ekki var sótt um byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum áður en þær hófust né óskað eftir breytingu á deiliskipulagi. Nú er tekin fyrir umsókn lóðarhafa um breytingu á deilsikipulagi vegna lóðarinnar svo framkvæmdirnar rúmist innan þess. Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 7. apríl 2017 er bent á að með umræddri deiliskipulagsbreytingu væri verið að víkja frá skilmálum skipulagsins er varðar umfang mannvirkja og fjarlægð þeirra frá lóðamörkum, sem gæti haft í för með sér nokkur grenndaráhrif. Breytingarnar séu til þess fallnar að breyta útliti og formi viðkomandi svæðis í Lindunum. Breytingin hefði jafnframt fordæmisgildi og vegna jafnræðissjónarmiða væri eðlilegra að breytingin næði til alls hverfisins sbr. deiliskipulag vesturhluta Fífuhvammslands - íbúðarsvæði norðan Fífuhvammsvegar samþykkt í bæjarstjórn 15. ágúst 1995.
Skipulagsráð getur ekki fallist á að víkja frá skilmálum deiliskipulagsins með þessum hætti og veita þannig fordæmi á svæðinu fyrir svo umfangsmiklum mannvirkjum á lóðamörkum. Beiðni um breytingu á deiliskipulagi vegna Laxalindar 15 er því hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
11.5 - 1707226 - Laufbrekka 22. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Þórðar Þorvaldssonar arkitekts fyrir hönd lóðarhafa Laufbrekku 22 þar sem óskað er eftir að reisa 37,1 m2 viðbyggingu við austurhlið hússins, sbr. uppdrætti í mkv 1:100 og 1:500 dags. 2. desember 2016. Á fundi skipulagsráðs 31. júlí var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Laufbrekku 17, 19, 20, 21, 23 og 24. Athugasemdafresti lauk 23. október 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Samþykkt. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
11.8 - 1703856 - Kópavogsbraut 75. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu leiðrétt tillaga Kristins Ragnarssonar, arkitekts dags. 16. mars 2017 þar sem fram kemur að lóðin er á deiliskipulögðu svæði. Í erindinu felst ósk um heimild til að rífa einbýlishús á lóðinni byggt 1953 ásamt bílskúr byggður 1977 samtals 112,7 m2 að flatarmáli. Lóðin er 986,0 m2 og núverandi nýtingarhlutfall 0,11. Jafnframt er óskað heimildar til að byggja á lóðinni fjögurra íbúða hús á tveimur hæðum auk kjallara og tveimur innbyggðum bílskúrum. Samanlagður gólfflötur er áætlaður liðlega 750 m2 og nýtingarhlutfall 0,8. Hámarkshæð miðað við aðkomuhæð er áætluð 6,2 m. Miðað er við tvö bílastæði á íbúð innan lóðar. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum. Athugasemdafresti lauk 29. september 2017. Athugasemd barst. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 3. nóvember 2017.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 40 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 21 lið.
Lagt fram.