Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vesturvör 50, umsókn um lóð

Málsnúmer: 16121048

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1165. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 7. nóvember, lögð fram umsókn um lóðina Vesturvör 50 frá Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar, Ásu Richardsdóttur, Margréti Júlíu Rafnsdóttur og Sverri Óskarssyni að úthluta lóðinni Vesturvör 50 til Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunnar ehf.

02

Bæjarráð - 2890. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 7. nóvember, lögð fram umsókn um lóðina Vesturvör 50 frá Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Péturs Hrafns Sigurðssonar að gefa Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Vesturvör 50 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bókun:

Undirritaður telur starfssemi ekki samræmast áformum verðlaunatillögu Nordic Built keppninnar.

Pétur Hrafn Sigurðssonar

03

Bæjarráð - 2852. fundur

Frá Íslyft ehf. og Steinbock-þjónustunni ehf., dags. 27. desember, lögð fram umsókn um lóðina Vesturvör 50.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.