Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2561. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Félagsmálaráð 7/9

1290. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

02

Forvarnanefnd 7/9

27. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

03

Skólahreysti óskar eftir styrk fyrir árið 2010

Liður 4 í fundargerð forvarnanefndar: Forvarnanefnd hefur ekki styrkt þetta verkefni af sínum fjárveitingum undanfarin ár, en hvetur bæjarráð til að styrkja verkefnið eins og það hefur gert hingað til. $line$Þar sem fjárveiting nefndarinnar leyfir ekki frekari styrki á árinu sér nefndin sér ekki fært að styrkja verkefnið. $line$

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til afgreiðslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

04

Heilbrigðiseftirlit 30/8

152. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

05

Íþrótta- og tómstundaráð 8/9

255. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

06

Jafnréttisnefnd 25/8

294. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

07

Ósk um framlag til rekstrar og verkefna Mannréttindaskrifstofu Íslands

Sbr. lið 4 í fundargerð Jafnréttisnefndar: Jafnréttisnefnd veitir jákvæða umsögn um styrkbeiðnina og leggur til að bæjarráð styrki starfsemi MSRÍ.

<DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.</DIV&gt;</DIV&gt;

08

Leikskólanefnd 7/9

10. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

09

Skólanefnd 6/9

16. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

10

Stjórn Héraðsskjalasafns 25/8

65. fundur

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð óskar eftir því að bæjarritari leggi fram kostnaðarmat vegna varðveislu og afhendingar rafrænna skjalasafna.</DIV&gt;</DIV&gt;

11

Samband íslenskra sveitarfélaga 25/6

775. fundur

<DIV&gt;<DIV&gt;Á fundinn mættu Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Karl Björnsson framkvæmdastjóri þess. Gerðu þeir grein fyrir samkomulagi Sambandsins við fjármálaráðherra um yfirfærslu málefna fatlaðra og jafnframt komandi landsþingi Sambandsins.</DIV&gt;</DIV&gt;

12

Samband íslenskra sveitarfélaga 26/8

776. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

13

Stjórn SSH 7/6

350. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

14

Stjórn Sorpu bs. 30/8

276. fundur

<DIV&gt;</DIV&gt;

15

Smiðjuvegur 13a. Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Frá bæjarritara, dags. 7/9, umsögn um erindi Kiwanisklúbbsins Eldeyjar varðandi styrk til greiðslu fasteignagjalda. Lagt er til að veittur verði styrkur til greiðslu af helmingi fasteignaskatts fyrir árið 2010, alls kr. 226.074.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð hafnar erindinu og felur bæjarritara að gera tillögu að breyttum reglum um styrkveitingar til félaga og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts.</DIV&gt;</DIV&gt;

16

Lindasmári 5, skaðabótakrafa

Frá bæjarlögmanni, dags. 6/9, umsögn sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 26/8 sl. varðandi skaðabótakröfu vegna Lindasmára 5. VÍS hefur þegar greitt hámarksbætur til tjónþola og er málinu því lokið.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

17

Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, umsögn vegna fyrirspurnar um hljóðvörn vegna hávaða frá Players.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

18

Aðgerðir vegna fjölbýlishúsa í byggingu, þar sem frágangi hefur ekki verið sinnt.

Frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, dags. 6/9, staða á frágangi utanhússklæðningar o.fl. við fjölbýlishús í byggingu, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 26/8 sl.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillögur um dagsektir vegna Vindakórs 2-8 og ósk um framkvæmdaáætlun vegna Boðaþings 10-12, Lundar 86-92, Vindakórs 10-12 og Tröllakórs 13-15.</DIV&gt;</DIV&gt;

19

Frá EFS. Niðurstaða ársreiknings Kópavogsbæjar fyrir árið 2010

Frá Eftirlitsnefnd með fjármálaum sveitarfélaga, dags. 31/8, niðurstaða ársreiknings Kópavogsbæjar fyrir árið 2009.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

20

Stefnumótun sveitarfélaga í skólamálum

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 1/9, varðandi stefnumótun sveitarfélaga í skólamálum.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

21

Beiðni um upplýsingar varðandi talþjálfun barna og unglinga í Kópavogi

Frá Málefli, dags. 1/9, óskað upplýsinga um hvernig staðið sé að talþjálfun barna og unglinga í sveitarfélaginu.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra fræðslusviðs til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

22

Ályktun velferðarvaktarinnar

Frá velferðarvaktinni, dags. 1/9, varðandi líðan barna og unglinga, ásamt fleiri þáttum í byrjun skólaárs.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

23

Snjóframleiðsla í Bláfjöllum.

Frá skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, dags. 11/6, kostnaðaráætlun við snjóframleiðslu á skíðasvæðum.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu sína um að áður en ákvarðanir verða teknar um frekari&nbsp;uppbyggingu í Bláfjöllum þurfi frekari upplýsingar að liggja fyrir.</DIV&gt;</DIV&gt;

24

Hamraborgarhátíð

Frá Theodóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 2/9, óskað upplýsinga varðandi nýafstaðna Hamraborgarhátíð.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

25

Kynning á skyldum vinnuveitenda varðandi vinnuverndarstarf

Frá Vinnueftirlitinu, dags. 2/9, varðandi vinnuverndarstarf í fyrirtækjum og stofnunum.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.</DIV&gt;</DIV&gt;

26

Skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar

Frá Umhverfisstofnun, dags. 31/8, vegna skila uppgjörs varðandi refa- og minkaveiðar á uppgjörstímabilinu 1.9. 2009 - 31.8.2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar erindinu til&nbsp;sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs&nbsp;til afgreiðslu.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

27

Færanleg loftgæðamælistöð.

Frá Umhverfisstofnun, dags. 27/8, þakkað fyrir lán á færanlegri loftgæðamælistöð, sem er í eigu Kópavogsbæjar.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

28

Fjallskilaboð haustið 2010

Frá Sauðfjáreigendafélagi Kópavogs, dags. 30/8, fjallskilaboð fyrir Kópavogskaupstað haustið 2010.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

29

Hlíðarendi 19. Umsókn um lóð

Sigfús A. Gunnarsson sækir um lóðina að Hlíðarenda 19.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð úthlutar Sigfúsi A. Gunnarssyni byggingarrétti að Hlíðarenda 19.</DIV&gt;</DIV&gt;

30

Aflakór 21 og 23. Umsókn um lóð

Ögurhvarf ehf. óskar eftir lóðinni að Aflakór 21 - 23.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð úthlutar Ögurhvarfi ehf. byggingarrétti á lóðinni að Aflakór 21-23.</DIV&gt;</DIV&gt;

31

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 14. september

<DIV&gt;<DIV&gt;I. Fundargerðir nefnda</DIV&gt;<DIV&gt;II. Kosningar</DIV&gt;</DIV&gt;

32

Tillaga að stofnun framkvæmdaráðs

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$""Með vísan til 58. gr. samþykkta um stjórn Kópavogsbæjar leggur bæjarráð til við bæjarstjórn, að skipað verði framkvæmdaráð með eftirfarandi hætti:$line$Bæjarráð skipi 3 fulltrúa úr sínum röðum í framkvæmdaráð til eins árs og tvo til vara. Auk þeirra sitji í ráðinu bæjarstjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs. Formaður bæjarráðs skal jafnframt vera formaður framkvæmdaráðs og stjórna fundum þess. Framkvæmdaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði.$line$Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs undirbýr ráðsfund í samráði við formann og forstöðumenn deilda. Skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs er starfsmaður ráðsins og ritar fundargerðir þess. Hann sér um að ráðið sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund. $line$Framkvæmdaráð fer með mál sem falla undir framkvæmda- og tæknisvið, svo sem mannvirkjagerð, eignarekstur, veitustarfsemi og umferðarmál, samkvæmt ákvæðum laga ásamt útboðsgerð og innkaupum skv. innkaupareglum. Vinna við innkaup, með það að markmiði að auka hagkvæmni í rekstri stofnana bæjarins, sem áður var veitt á stjórnsýslusviði, færist með þessu á framkvæmda- og tæknisvið. Þá skal ráðið fara með eignaumsjón félagslegra íbúða húsnæðisnefndar.$line$Framkvæmdaráð gerir tillögur til bæjarráðs um afgreiðslu einstakra mála, sem það fær til meðferðar.$line$Fundargerðir ráðsins skulu lagðar fram í bæjarráði til afgreiðslu.$line$Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri""

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

33

Tillaga að stofnun nefndar um yfirfærslu á málefnum fatlaðra

Formaður bæjarráðs lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$""Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn, að á grundvelli 58. gr. samþykkta um stjórn Kópavogsbæjar setji bæjarstjórn á fót nefnd um yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga.$line$Nefndin verði skipuð þremur fulltrúum sem bæjarstjórn kýs.$line$Guðríður Arnardóttir""

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að gera drög að erindisbréfi fyrir nefndina sem lögð verði fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.</DIV&gt;

34

Minnisblað um málefni Strætó bs.

Hjálmar Hjálmarsson fulltrúi Kópavogsbæjar í Strætó bs. lagði fram minnisblað, sem hann lagði fram á fundi stjórnar Strætó bs., 5. júlí 2010.

<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;