Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga að stofnun framkvæmdaráðs

Málsnúmer: 1009120

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1022. fundur

Frá bæjarstjóra, tillaga að stofnun framkvæmdaráðs, sem vísað var til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi bæjarráðs 23/9.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Til máls tók Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, og gerði grein fyrir tillögu um stofnun framkvæmdaráðs. Lagði hún til að tillagan yrði samþykkt og að bæjarráði yrði falið að setja nefndinni erindisbréf.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Til máls tók Gunnar Ingi Birgisson og lagði til breytingartillögu við tillögu bæjarstjóra um að nefndin væri ólaunuð. Því næst tóku til máls Guðríður Arnardóttir, Gunnar Ingi Birgisson, Ómar Stefánsson, Ármann Kr. Ólafsson, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, Ómar Stefánsson, Rannveig Ásgeirsdóttir, Erla Karlsdóttir, Margrét Björnsdóttir og&nbsp;Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Forseti tók til afgreiðslu tillögu bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um frestun á stofnun framkvæmdaráðs, sem lögð var fyrir fyrr á fundinum undir lið 3. Var tillagan felld með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með henni.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Þá bar forseti undir fundinn breytingartillögu Gunnars Inga Birgissonar og var hún felld með fimm atkvæðum en einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði með henni.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Ármann Kr. Ólafsson tók til máls um stjórn fundarins.</DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;<DIV&gt;Þá&nbsp;bar forseti undir fundinn tillögu bæjarstjóra um stofnun framkvæmdaráðs og var hún samþykkt með sex atkvæðum gegn þremur, en tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Bæjarráð - 2563. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram að nýju tillaga, sem frestað var á fundi bæjarráðs 9/9, um skipun framkvæmdaráðs.

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Bæjarráð - 2561. fundur

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$""Með vísan til 58. gr. samþykkta um stjórn Kópavogsbæjar leggur bæjarráð til við bæjarstjórn, að skipað verði framkvæmdaráð með eftirfarandi hætti:$line$Bæjarráð skipi 3 fulltrúa úr sínum röðum í framkvæmdaráð til eins árs og tvo til vara. Auk þeirra sitji í ráðinu bæjarstjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs. Formaður bæjarráðs skal jafnframt vera formaður framkvæmdaráðs og stjórna fundum þess. Framkvæmdaráð skal að jafnaði halda fund á föstum tíma og eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði.$line$Sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs undirbýr ráðsfund í samráði við formann og forstöðumenn deilda. Skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs er starfsmaður ráðsins og ritar fundargerðir þess. Hann sér um að ráðið sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund. $line$Framkvæmdaráð fer með mál sem falla undir framkvæmda- og tæknisvið, svo sem mannvirkjagerð, eignarekstur, veitustarfsemi og umferðarmál, samkvæmt ákvæðum laga ásamt útboðsgerð og innkaupum skv. innkaupareglum. Vinna við innkaup, með það að markmiði að auka hagkvæmni í rekstri stofnana bæjarins, sem áður var veitt á stjórnsýslusviði, færist með þessu á framkvæmda- og tæknisvið. Þá skal ráðið fara með eignaumsjón félagslegra íbúða húsnæðisnefndar.$line$Framkvæmdaráð gerir tillögur til bæjarráðs um afgreiðslu einstakra mála, sem það fær til meðferðar.$line$Fundargerðir ráðsins skulu lagðar fram í bæjarráði til afgreiðslu.$line$Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri""

<DIV&gt;<DIV&gt;Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.</DIV&gt;</DIV&gt;