Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2616. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðríður Eldey Arnardóttir - formaður
  • Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson - áheyrnarfulltrúi
  • Rannveig H Ásgeirsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Þórður Clausen Þórðarson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Þórður Cl. Þórðarson

Dagskrá fundar

01

Landsskipulagsstefna 2012-2024

Frá bæjarstjóra, frestað mál frá síðasta fundi, erindi Skipulagsstofnunar, dags. 25/10, óskað eftir tilnefningu fulltrúa Kópavogs til þátttöku í samráðsvettvangi um landsskipulagsstefnu 2012-2024.

Bæjarráð tilnefnir formann skipulagsnefndar og skipulagsstjóra til þátttöku í fundinum

02

Fjárhagsáætlun 2011. Lista- og menningarsjóður. Reglur lista- og menningarsjóðs

Frá bæjarstjóra, tillaga að reglum lista- og menningarsjóðs, sem samþykkt var á fundi menningar- og þróunarráðs 7. nóvember sl.

Frestað til næsta fundar.

03

Kostnaður við Punk-hátíð. Svar við fyrirspurn frá Ómari Stefánssyni.

Frá bæjarritara, dags. 7/11, svar við fyrirspurn varðandi kostnað við punkhátíðina 21. og 22. október sl.

Lagt fram.

04

Smiðjuvegur 2, Hrói höttur. Beiðni um umsögn

Frá bæjarlögmanni, dags. 8/11, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 2. nóvember 2011, þar sem hann óskar eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar HRH eignarhaldsfélags um nýtt/breytt rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn Hróa hött, Smiðjuvegi 2 í Kópavogi, en umsóknin fellur undir flokk I, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar eru innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

05

Ráðning í laus störf upplýsingatæknideildar

Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 8/11, óskað heimildar til að ráða í tvö laus störf innan deildarinnar.

Samþykkt.

06

Framtíðarhópur SSH - verkefnahópur 8

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8/11, svohljóðandi bókun umhverfis- og samgöngunefndar um niðurstöður framtíðarhóps SSH, verkefnahóps 8, um almenningssamgöngur, vistvænar samgöngur og hjólreiðar:$line$Umhverfis- og samgöngunefnd er sammála og gerir ekki athugasemdir við tillögur verkefnahóps 8 að því gefnu að það liggi fyrir hvaða framkvæmdum eigi að fresta og að tryggt verði að fjármunir komi frá ríkinu eins og lofað var. Nefndin leggur einnig áherslu á að með úreldingu olíuvagna falli niðurgreiðsla olíugjalds niður samhliða, að því gefnu að ekki verði keyptir inn nýir olíuvagnar.

Lagt fram.

07

Frumvarp um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum. Óskað eftir athugasemdum við frumvarpsdrög

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8/11, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 27/10 sl. um frumvarp um breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við frumvarpsdrögin og á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 7/11 var erindið lagt fram og gerði nefndin ekki athugasemdir við drögin.

Lagt fram.

08

Niðurgreiðsla/ viðbótarniðurgreiðsla fyrir systkini

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 1/11, tillaga um breytingu á niðurgreiðslum vegna systkina hjá dagforeldrum.

Samþykkt.

09

Ósk um tveggja vikna sumarlokun 2012 í stað fjögurra

Frá leikskólafulltrúa, dags. 9/11, bókun leikskólanefndar frá 8/11 þar sem erindi foreldra leikskólans Dals er hafnað.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu leikskólanefndar.

10

Starf forstöðumanns Hrauntungu.

Frá yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra, dags. 8/11, tillaga að ráðningu forstöðumanns Hrauntungu.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

11

Skoðun á rekstri og faglegu starfi

Frá fundi félagsmálaráðs 25/10, samþykkt tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 12/10, um að gerð verði úttekt á rekstrarlegum þáttum starfsstöðva, í Dimmuhvarfi til að byrja með, en málinu er vísað til bæjarráðs þar sem um er að ræða kostnað sem er ekki á fjárhagsáætlun.

Samþykkt.

12

Rekstrar- og framkvæmdaáætlun skíðasvæðanna 2012

Framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins mætti til fundar og gerði grein fyrir drögum að rekstrar- og framkvæmdaáætlun fyrir 2012.

13

Samskipti hestamannafélagsins Gusts og Kópavogsbæjar

Frá hestamannafélaginu Gusti, dags. 9/11, óskað eftir fundi með bæjarráði Kópavogs varðandi stöðu uppbyggingar svæðisins á Kjóavöllum

Formaður bæjarráðs leggur til að bæjarstjóra verði falið að boða fulltrúa Gusts á næsta fund. Samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka að meirihlutinn gerði tillögu Sjálfstæðismanna að sinni og því samþykkjum við hana að sjálfsögðu, enda felur hún það í sér að loksins er eitthvað gert í málinu. Formaður óskar bókað : LOL.

14

Dalvegur 6 - 8, gegnumakstur.

Frá Lex lögmannsstofu, dags. 1/11, ítrekuð ósk um fund vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Dalveg 6 - 8.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska bókað: "Okkur finnst ámælisvert að bæjaryfirvöld hafa ekki svarað bréfi viðkomandi frá 12. apríl s.l. Þeim fjölgar sífellt mánuðum sem líða áður en erindum er svarað. Þetta er á ábyrgð formanns bæjarráðs. Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar I. Birgisson" Sviðsstjóri umhverfissviðs mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu málsins. Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að gera bæjarráði skriflega grein fyrir ferli málsins og funda með lögmanni lóðarhafa.

15

Kórsalir 5. Stjórnsýslukæra vegna samskipta Kópavogsbæjar og húsfélagsins að Kórsölum 5

Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 2/11, óskað eftir umsögn sveitarfélagsins fyrir 18/11 nk. vegna stjórnsýslukæru húsfélagsins Kórsölum 5.

Bæjarráð óskar eftir því að bæjarlögmaður komi með tillögu að svari á næsta fund ráðsins.

16

Framlög úr Jöfnunarsjóði til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda

Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 4/11, tilkynning um úthlutun framlaga vegna tónlistarnáms.

Lagt fram.

17

Skipulagsreglugerð, ósk um umsögn.

Frá umhverfisráðuneytinu, dags. 3/11, óskað umsagnar um drög að nýrri skipulagsreglugerð.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og skipulagsnefndar til umsagnar.

18

Öryggi barna hjá dagforeldrum.

Frá velferðarráðuneytinu, dags. 1/11, upplýsingar varðandi framkvæmd reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005.

Lagt fram og vísað til sviðsstjóra menntasviðs og leikskólanefndar.

19

Umsókn um styrk vegna heimildarmyndar um sögu knattspyrnudeildar Breiðabliks

Frá Breiðabliki, dags. 3/11, styrkbeiðni vegna kostnaðar við gerð heimildarmyndar um sögu knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Bæjarráð hafnar erindinu en bendir deildinni á að hægt er að sækja um styrki til verkefna af þessu tagi til lista- og menningarsjóðs.

20

Beiðni um styrk fyrir jólin

Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, dags. í nóvember, óskað eftir framlagi til nefndarinnar í formi fjárstyrks eða matarkorta.

Frestað til næsta fundar.

21

Beiðni um upplýsingar vegna töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011

Frá Hagstofu Íslands, dags. 2/11, beiðni um upplýsingar vegna töku manntals og húsnæðistals í árslok 2011

Vísað til bæjarritara.

22

Beiðni um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2012

Frá Snorraverkefninu, dags. 7/11, óskað eftir styrk til verkefnisins fyrir sumarið 2012.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.

23

Námsskrá Myndlistarskóla Kópavogs

Frá Myndlistarskóla Kópavogs, skólanámsskrá 2011 og umsókn um viðurkenningu til menntamálaráðuneytisins.

Lagt fram.

24

Fífuhvammur 25. Kæra vegna synjunar á umsókn um viðbyggingu. Fyrirspurn frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi fyrirspurn:

<EM>"Hvers vegna hefur ekkert borist til úrskurðarnefndar bygginga- og skipulagsmála vegna fyrirspurnar frá þeim til bæjaryfirvalda frá því í maí sl.</EM><EM>Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"</EM>