Til baka í fundargerðir
Þakkarbréf fyrir stuðning við Mæðrastyrksnefnd Kópavogs
Málsnúmer: 1111147
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2627. fundur
Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, dags. 23/1, þakkir færðar fyrir ómetanlegan stuðning við starfsemina á árinu 2011.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2617. fundur
Frá bæjarritara, dags. 16/11, umsögn um styrkbeiðni mæðrastyrksnefndar Kópavogs, ásamt greinargerð um greidda styrki á undanförnum árum.
Kópavogsbær hefur styrkt Mæðrastyrksnefnd um rúmar fjórar milljónir króna á árinu 2011 með afnotum af húsnæði bæjarins. Bæjarráð samþykkir að styrkja Mæðrastyrksnefnd fyrir jólin sem nemur andvirði jólakorta, sem annars væru send á vegum bæjarins.
03
Bæjarráð - 2616. fundur
Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, dags. í nóvember, óskað eftir framlagi til nefndarinnar í formi fjárstyrks eða matarkorta.
Frestað til næsta fundar.