Bæjarráð - 2798. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Guðrún Jónína Guðjónsdóttir
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Kærunefnd jafnréttismála. Kæra vegna synjunar um starf forstöðumanns Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Frá bæjarlögmanni, dags. 24. nóvember, lagt fram bréf vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála í máli nr. 9/2015.
Lagt fram.
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 20. nóvember, lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir slökkviliðið.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 23. nóvember, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir leyfi fyrir flugeldasölu á þremur stöðum í bænum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, lögð fram beiðni þar sem óskað er eftir stuðningi við starfsemina vegna úthlutunar um jólin.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarritari til afgreiðslu.
05
Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 263. mál. Beiðni um umsögn.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 16. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), 263. mál (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
06
Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára, 338. mál. Beiðni um umsögn.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 18. nóvember, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára (stjórnarfrumvarp), 338. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá forstöðumanni UT-deildar og verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 25. nóvember, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna kaupa á spjaldtölvum fyrir grunnskóla Kópavogs.
Bæjarráð hafnar tilboðinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar 2016.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
173. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 7. liðum.
Lagt fram.
52. fundur íþróttaráðs í 35. liðum.
Lagt fram.
150. fundur stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í 5. liðum.
Lagt fram.
64. fundur leikskólanefndar í 12. liðum.
Lagt fram.
51. fundur lista- og menningarráðs í 7. liðum.
Lagt fram.
230. fundur stjórnar Strætó í 3. liðum.
Lagt fram.
231. fundur stjórnar Strætó í 1. lið.
Lagt fram.