Innleiðing spjaldtölva í grunnskólum Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 1501415
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3007. fundur
Frá forstöðumanni Upplýsingatæknideildar, dags. 16. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna kaupa á spjaldtölvum fyrir haustið 2020. Lagt er til að keyptar verði 1026 spjaldtölvur af lægstbjóðanda Skakka turni ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Skakka turninn ehf.
02
Bæjarráð - 3003. fundur
Frá UT-deild, dags. 8. maí, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar til að fara í útboð á 1020 spjaldtölvum.
Fundarhlé hófst kl. 14:16, fundi fram haldið kl. 14:30.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.
03
Menntaráð - 28. fundur
Verkefnistjóri innleiðingar á spjaldtölvum kemur á fund ráðs með kynningu á stöðu mála.
Upplýsingar um verkefni er t.d. að finna á eftirfarandi slóðum:
https://issuu.com/spjaldtolvurkopavogi/docs/bk
https://issuu.com/spjaldtolvurkopavogi/docs/vertu_foreldri
http://spjaldtolvur.kopavogur.is/rannsoknir-og-skyrslur/
Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri kom á fund menntaráðs og kynnti stöðu á innleiðingu spjaldtölva.
04
Menntaráð - 22. fundur
Verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar kynnir stöðu mála.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar kom á fund menntaráðs og kynnti ítarlega stöðu mála í verkefninu.
05
Menntaráð - 16. fundur
Kynning á meistaraverkefninu: Innleiðing á spjaldtölvum í starfi grunnskóla. Handbókarvefur fyrir sveitarfélög og skólafólk. https://innleiding.com
Sigurður Haukur Gíslason, kennsluráðgjafi í upplýsingatækni kynnti meistaraverkefni sitt. Menntaráð þakkar áhugaverða kynningu.
06
Menntaráð - 9. fundur
Verkefnastjóri kemur og kynnir stöðu mála.
Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri spjaldtölvuverkefnis kom og kynnti fyrstu niðurstöður úr könnun meðal kennara.
07
Bæjarráð - 2870. fundur
Kynning á spjaldtölvuverkefninu frá verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 7.35, fundi fram haldið kl. 8.18.
08
Innkauparáð - 2. fundur
Frá verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 7. apríl, lögð fram til kynningar niðurstaða örútboðs vegna spjaldtölvukaupa.
Lagt fram
09
Bæjarráð - 2867. fundur
Frá verkefnastjóra spjaldtölvuverkefnis, dags. 11. apríl, lagðar fram niðurstöður útboðs um spjaldtölvukaup vegna úthlutunar til nemenda sem hefja nám í fimmta bekk haustið 2017. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda Skakkaturn um kaup á 530 spjaldtölvum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að ganga til samninga við Skakkaturn um kaup á 530 spjaldtölvum fyrir fimmta bekk.
10
Menntaráð - 4. fundur
Verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar kemur og segir frá stöðu mála.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar gerði grein fyrir stöðu verkefnis. Menntaráð óskar eftir stöðuskýrslu einu sinni á ári.
11
Skólanefnd - 111. fundur
Kynning á stöðu verkefnis.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri spjaldtölvuvæðingar, gerir grein fyrir stöðu verkefnis.
12
Bæjarráð - 2827. fundur
Frá verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 15. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs um kaup á spjaldtölvum vegna innleiðingar í grunnskólum Kópavogsbæjar. Óskað er eftir heimild til að ganga til samninga við Skakkaturn ehf. um kaup á 1045 spjaldtölvum.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild með fimm atkvæðum.
13
Skólanefnd - 104. fundur
Verkefnastjóri kemur á fund.
Verkefnastjóri forfallaðist og farið var stuttlega yfir stöðu mála. Sagt var frá uppskeruhátíð sem haldin verður í Salnum 14. júní kl. 9:30 - 14:30.
14
Skólanefnd - 102. fundur
Björn Gunnlaugsson verkefnisstjóri kom og gerði grein fyrir stöðu mála.
15
Skólanefnd - 100. fundur
Kynning á stöðu verkefnis.
Björn Gunnlaugsson verkefnasstjóri spjaldtölvuverkefnis kom og sagði frá.
16
Skólanefnd - 97. fundur
Kynning á stöðu verkefnis.
Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri kom á fundinn og gerði grein fyrir næstu skrefum í innleiðingu á spjaldtölvum.
17
Bæjarráð - 2799. fundur
Frá forstöðumanni UT-deildar og verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 30. nóvember, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að ganga til samninga við Skakkaturn ehf. um kaup á 1.100 iPad spjaldtölvum fyrir sjötta og sjöunda bekk í grunnskólum Kópavogs, þannig að kaupin rúmist innan fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við Skakkaturn ehf. um kaup á 1.100 iPad spjaldtölvum.$line$$line$Verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar sat fundinn undir þessum lið.
18
Bæjarráð - 2798. fundur
Frá forstöðumanni UT-deildar og verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 25. nóvember, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna kaupa á spjaldtölvum fyrir grunnskóla Kópavogs.
Bæjarráð hafnar tilboðinu þar sem það rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar 2016.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
19
Skólanefnd - 94. fundur
Verkefnastjóri kemur í heimsókn.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri sagði frá stöðu mála.
20
Skólanefnd - 90. fundur
Verkefnastjóri kemur og segir frá stöðu mála.
Björn Gunnlaugsson, verkefnastjóri upplýsti nefndina um afhendingu spjaldtölva til nemenda.
21
Bæjarráð - 2785. fundur
Sviðsstjóri menntasviðs gerði grein fyrir stöðu í innleiðingu spjaldtölva í grunnskólum bæjarins.
Lagt fram.$line$$line$Sviðsstjóri menntasviðs og verkefnisstjóri spjaldtölvuinnleiðingar sátu fundinn undir þessum lið.
22
Skólanefnd - 89. fundur
Verkefnastjóri Björn Gunnlaugsson kemur í heimsókn.
Verkefnastjóri upplýsti um stöðu mála í innleiðingarferlinu.
23
Bæjarráð - 2776. fundur
Frá forstöðumanni UT-deildar og verkefnastjóra spjaldtölvuinnleiðingar, dags. 8. maí, lagðar fram niðurstöður útboða vegna spjaldtölvukaupa til innleiðingar í grunnskólum Kópavogs. Lagt til að gengið verði til samninga við Skakkaturn ehf. um kaup á búnaðinum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ganga til samninga við Skakkaturn ehf. um kaup á spjaldtölvum til innleiðingar í grunnskólum bæjarins.$line$$line$Forstöðumaður UT-deildar sat fundinn undir þessum lið.
24
Bæjarráð - 2775. fundur
Frá Rannís, dags. 15. maí, lagt fram erindi vegna umsóknar Kópavogsbæjar um styrk fyrir verkefnið Spjaldtölvur við kennslu, þar sem tilkynnt er um að umsóknin hafi verið samþykkt.
Lagt fram.
25
Skólanefnd - 87. fundur
Næstu skref verkefnis kynnt.
Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri kom og sagði frá.
26
Skólanefnd - 85. fundur
Staða verkefnis kynnt.
Björn Gunnlaugsson, verkefnisstjóri í innleiðingu spjaldtölva kom í heimsókn og gerði grein fyrir næstu skrefum verkefnisins.
27
Skólanefnd - 83. fundur
Kynning á stöðu.
Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar fór yfir stöðu verkefnis.
28
Skólanefnd - 82. fundur
Kynning á stöðu verkefnis.
Umræður um verkefnið sköpuðust.