Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2733. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Una Björg Einarsdóttir - varafulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

Fundargerðir nefnda

01

Stjórn Sorpu bs., 26. maí

336. fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

02

Svæðisskipulagsnefnd hbsv., 26. maí

48. fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Ungmennaráð Kópavogs

Lögð fram drög að erindisbréfi Ungmennaráðs Kópavogs. Drögin voru samþykkt á fundi forvarna- og frístundanefndar þann 14. maí sl. og lagt til að stofnað yrði Ungmennaráð Kópavogs sem tæki til starfa haustið 2014 samkvæmt erindisbréfi.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

04

Almenningssamgöngustefna Reykjavíkur. Samferða Reykjavík.

Frá Reykjavíkurborg, dags. 23. maí, lagt fram til umsagnar erindi starfshóps um stefnumörkun í almenningssamgöngum í Reykjavíkurborg, dags. 19. maí.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.

Ýmis erindi

05

Áskorun Foreldrafélags Smáraskóla um bætt öryggi barna við skólann

Frá foreldrafélagi Smáraskóla, dags. 22. maí, óskað eftir úrbótum á aðgengi fatlaðra og öryggi barna vegna aukinnar bifreiðaumferðar við skólann tengda íþróttastarfsemi.

Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar og umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.