Dalsmári 1 - Smáraskóli - Umferðamál
Málsnúmer: 1405569
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 65. fundur
Kynnt teikning af fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 22. janúar 2015.
Lagt fram og kynnt.
02
Bæjarráð - 2760. fundur
Umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði varðandi bætta umferð að Smáraskóla, ásamt tillögu að afgreiðslu, samþykkt á fundi umhverfis- og samgöngunefndar þann 26. janúar, sbr. lið 9 í fundargerð.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu umhverfis- og samgöngunefndar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 60. fundur
Frá foreldrafélagi Smáraskóla, dags. 22. maí, óskað eftir úrbótum á aðgengi fatlaðra og öryggi barna vegna aukinnar bifreiðaumferðar við skólann tengda íþróttastarfsemi.$line$Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar og umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.$line$Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar 3.6.2014 leggur nefndin til að bílastæði austan Kópavogsvallar verðir aðskilið umferð að Smáraskóla með lokun og að bæta verði aðgengi og bílastæðamál fyrir fatlaða og vísar öðrum liðum erindisins til sviðstjóra umhverfissviðs.$line$Á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 3.12.2014 er lögð fram tillaga að útfærslu á aðskilnað á umferð að Smáraskóla og bílastæðum austan Kópavogsvallar í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 2.6.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu og vísar henni sem umsögn nefndarinnar til bæjarráðs.
04
Umhverfis- og samgöngunefnd - 57. fundur
Lögð fram tillaga að útfærslu á aðskilnað á umferð að Smáraskóla og bílastæðum austan Kópavogsvallar í samræmi við samþykkt umhverfis- og samgöngunefndar 2.6.2014.
Lagt fram og kynnt. Samþykkt einróma.
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 50. fundur
Lagt fram erindi frá foreldrafélagi Smáraskóla varðandi umferðar og öryggismál við Smáraskóla dags. 22.5.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur til að bílastæði austan Kópavogsvallar verðir aðskilið umferð að Smáraskóla með lokun og að bæta verði aðgengi og bílastæðamál fyrir fatlaða og vísar öðrum liðum erindisins til sviðstjóra umhverfissviðs.
06
Bæjarráð - 2733. fundur
Frá foreldrafélagi Smáraskóla, dags. 22. maí, óskað eftir úrbótum á aðgengi fatlaðra og öryggi barna vegna aukinnar bifreiðaumferðar við skólann tengda íþróttastarfsemi.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar og umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.