Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3247. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Gjaldskrárhækkun Veitna

Fulltrúar Veitna fara yfir forsendur á bakvið 10-20% gjaldskrárhækkanir á heimilin.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 9.15.

02

Barnasáttmálinn 2025-2027

Frá áhættu- og fjárstýringarstjóra, dags. 18.02.2026, lögð fram umsögn vegna kostnaðarmats aðgerðaráætlunar Barnvæns sveitarfélags 2026.

Lagt fram.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða aðgerðaráætlun, með vísan til umsagnar, að undanskilinni aðgerð nr. 5 sem er vísað til bæjarstjóra til frekari skoðunar.

03

Ástún 14. Heimild til sölu

Frá deildarstjóra greiningardeildar, lögð fram beiðni um heimild til sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14.

Umræður

Gestur vék af fundi kl. 10:06

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bókun:

"Í reikningsskilum sveitarfélaga er gert ráð fyrir að greint sé á milli félagslegs leiguhúsnæðis og félagslegs þjónustuhúsnæðis, svo sem íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Hjá Kópavogsbæ eru báðar tegundir húsnæðis í bókhaldi færðar undir húsnæðisnefnd, sem ekki er starfandi. Mikilvægt er að framsetning og umræða um þessi mál sé með þeim hætti að unnt sé að átta sig skýrt á þróun íbúðafjölda í hvorum flokki fyrir sig."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

04

Fannborg 2. Kæra vegna afgreidslu byggingafulltrúa þann 30. janúar 2026 vardandi Fannborg 2., mál UUA2602010

Frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, dags. 20.02.2026, lagður fram úrskurður í máli nr. UUA2602010.

Lagt fram.

Umræður.

05

Ósk um stofnun nefndar sem skoðar uppbyggingu golfvalla á svæði Kópavogs

Frá GKG, dags. 23.02.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir stofnun nefndar sem skoðar uppbyggingu golfvalla á svæði Kópavogs.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og umhverfissviðs.

06

Auglýst eftir framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga

Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dags. 12.02.2026, lagt fram erindi þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Frestur til að bjóða sig fram er til 27.02.2026.

Lagt fram.

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 437. fundur frá 13.02.2026

Fundargerð í 19 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

08

Innkaupanefnd - 13. fundur frá 16.02.2026

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

09

Skipulags- og umhverfisráð - 24. fundur frá 16.02.2026

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

10

Menntaráð - 157. fundur frá 17.02.2026

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.02.2026

Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.02.2026.

Lagt fram.

12

Fundargerð 143. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 13.02.2026

Fundargerð 143. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 13.02.2026.

Lagt fram.

13

Fundargerð 623. fundar stjórnar SSH frá 16.02.2026

Fundargerð 623. fundar stjórnar SSH frá 16.02.2026

Lagt fram.

14

Fundargerð 434. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18.02.2026

Fundargerð 434. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18.02.2026.

Lagt fram.

15

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur varðandi svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu

Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, lögð fram beiðni um umræðu á fundi bæjarráðs varðandi svifryk.

Umræður.