Þverbrekka 2, Ástún 12 og Ástún 14. Heimild til sölu
Málsnúmer: 2508895
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1335. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, lögð fram beiðni um heimild til sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14.
02
Bæjarráð - 3247. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, lögð fram beiðni um heimild til sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14.
Umræður
Gestur vék af fundi kl. 10:06
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila sölu íbúðar 205-8698 í Ástúni 14 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bókun:
"Í reikningsskilum sveitarfélaga er gert ráð fyrir að greint sé á milli félagslegs leiguhúsnæðis og félagslegs þjónustuhúsnæðis, svo sem íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Hjá Kópavogsbæ eru báðar tegundir húsnæðis í bókhaldi færðar undir húsnæðisnefnd, sem ekki er starfandi. Mikilvægt er að framsetning og umræða um þessi mál sé með þeim hætti að unnt sé að átta sig skýrt á þróun íbúðafjölda í hvorum flokki fyrir sig."
Bergljót Kristinsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
03
Bæjarráð - 3240. fundur
Frá deildarstjóra greiningadeildar, dags. 12.12.2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til sölu íbúðar 206-6390 og 206-6400 í Þverbrekku 2 og 205-8675 í Ástúni 12.
Umræður.
Gestur vék af fundi kl. 8:44
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur umbeðna heimild.
Bæjarráð samþykkir að óska eftirfarandi upplýsinga:
"Óskað er greinargerðar um stöðu og hlutverk húsnæðisnefndar Kópavogs (erindisbréf) og hver og hvernig veitt er umboð til einstakra starfsmanna til að annast umsýslu fyrir hönd húsnæðisnefndar. Þá er óskað upplýsinga um hvernig söluþóknanir sem Kópavogsbær greiðir fasteignasölum vegna sölumeðferðar félagslegra fasteigna Kópavogsbæjar eru ákvarðaðar. Enn fremur hvernig staðið er að vali á fasteignasölum til að annast þjónustuna.
Sérstaklega er óskað umfjöllunar um hvernig staðið er að lögbundnum hlutverkum í húsnæðismálum og félagslegri íbúðastefnu."
Vísað til afgreiðslu bæjarritara.
04
Bæjarráð - 3223. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 18.08.2025, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að selja íbúðirnar Þverbrekka 2 (ibúðir 0304 og 0602), Ástún 12 (íbúð 0104) og Ástún 14 (íbúð 0204).
Gestur vék af fundi kl. 9:13
Umræður.
Bæjarráð samþykkir að veita heimild til þess að hefja söluferli tilvitnaðra íbúða.
Bókun:
Í ljósi þess að þegar hafa verið seldar þrjár íbúðir á árinu og fyrirhuguð sala fjögurra íbúða bætist nú við, á sama tíma og átta íbúðir hafa verið keyptar, leggja undirrituð sérstaka áherslu á að áfram verði staðið við þau markmið að kaupa nýjar og hentugar íbúðir í stað þeirra sem seldar eru, ásamt eðlilegri fjölgun íbúða í takt við vaxandi þörf.
Mikil þörf er fyrir slíkt húsnæði í sveitarfélaginu og mikilvægt að tryggja áframhaldandi viðhald og uppbyggingu þess eignasafns sem þjónar þeim sem á því þurfa að halda.
Helga Jónsdóttir Vinum Kópavogs
Jóhanna Pálsdóttir, Viðreisn
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Pírötum
Hákon Gunnarsson Samfylkingu
Hjördís Ýr Johnson
Björg Baldursdóttir