Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2958. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hákon Helgi Leifsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Tónlistarskólinn Tónsalir, húsnæðismál

Frá fjármálastjóra og rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 7. maí, lagt fram erindi um húsnæðismál tónlistarskólans Tónsala þar sem lögð eru til kaup húsnæðis að Ögurhvarfi 4a og útleiga til tónlistarskólans í kjölfarið. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins til næsta fundar á fundi sínum þann 9. maí sl. Einnig er lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 14. maí, um umferðaröryggi og samgöngur vegna aðgengis að Ögurhvarfi 4a.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Tónlistarskólann Tónsali um fyrirkomulag húsnæðismála skólans. Málið komi að nýju fyrir næsta fund bæjarráðs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Menntasvið-framlög vegna frístundar í einkaskólum

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 2. maí, lögð fram til samþykktar tillaga að gjaldskrá um framlög vegna frístundar í einkaskólum.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Skíðaskáli Lækjarbotnum. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 8. maí, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Skíðadeildar ÍR um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 979.050,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn Skíðadeildar ÍR til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 979.050.-.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Vesturvör, Litlavör, Naustavör, gatnagerð og undirgöng, útboð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14. maí, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í útboð vegna gatnagerðar við Vesturvör, Litluvör og Naustavör á Kársnesi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila útboð á verkinu "Vesturvör, Litlavör, Naustavör, gatnagerð og lagnir".

Ýmis erindi

05

Beiðni um styrk við hátíð fyrir börn í Tasiilaq, vinabæ Kópavogs í Grænlandi

Frá skákfélaginu Hróknum, lögð fram beiðni um stuðning við hátíð fyrir börn í Tasiilaq vinabæ Kópavogs á Grænlandi að fjárhæð kr. 600.000. Einnig er óskað eftir fundi með sveitarfélaginu um önnur úrræði til að sýna íbúum Tasiilaq stuðning.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita kr. 400.000,- til verkefnisins. Jafnframt er tekið jákvætt í ósk um fund.

Ýmis erindi

06

Stefnumótun í íþróttamálum 2019-2030

Frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 2. maí, lögð fram stefna ráðuneytisins í íþróttamálum.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

07

Styrkbeiðni vegna þátttöku í Ólympíkeppni í stærðfræði

Frá Arnari Ágústi Karlssyni, dags. 7. maí, lagt fram erindi um styrk vegna þátttöku í Ólympíuleikum í stærðfræði sem fer fram í Bretlandi dagana 11-22. júlí.

Bæjarráð vísar málinu til starfsmannastjóra til afgreiðslu.

Ýmis erindi

08

Styrkbeiðni vegna þátttöku í Ólympíuleikum framhaldsskólanema í líffræði

Frá þjálfara liðs Íslands í Ólympíuleikum í líffræði f.h. Hafdísar Óskar Hrannarsdóttur, dags. 8. maí, lagt fram erindi um styrk vegna þátttöku á Ólympíuleikum í líffræði sem fer fram í Ungverjalandi í sumar.

Bæjarráð vísar málinu til starfsmannastjóra til afgreiðslu.

Ýmis erindi

09

Nýr sparkvöllur í Þingahverfi. Erindi frá íbúum Þingahverfis ásamt undirskriftarlistum

Frá íbúum Þingahverfis, lagt fram erindi ásamt undirskriftarlista þar sem óskað er eftir að settur verði upp sparkvöllur í hverfinu.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til úrvinnslu.

Ýmis erindi

10

Borgarlína. Samkomulag um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning 2019-2020 vegna lagningar Borgarlínu

Frá SSH, dags. 7. maí, lögð fram tillaga að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning vegna lagningar Borgarlínu, sem var samþykkt á fundi stjórnar SSH þann 6. maí sl. og vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 267. fundur frá 09.05.2019

Fundargerð í 11. liðum.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar

Fundargerðir nefnda

12

Íþróttaráð - 92. fundur frá 09.05.2019

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

13

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 70. fundur frá 09.05.2019

Fundargerð í 2. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

14

Menntaráð - 42. fundur frá 07.05.2019

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 375. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 14.05.2014

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 470. fundar stjórnar SSH frá 06.05.2019

Fundargerð í 7. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 303. fundar stjórnar Strætó bs. frá 03.05.2019

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

18

Umhverfis- og samgöngunefnd - 115. fundur frá 06.05.2019

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram

Fundargerðir nefnda

19

Velferðarráð - 45. fundur frá 13.05.2019

Fundargerð í 14. liðum.

Lagt fram.


19.10 - 16091082 - Notendaráð vegna málefna fatlaðs fólks

Lagt fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti framlögð drög að erindisbréfi fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar málinu til forsætisnefndar.