Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Borgarlína. Tæknilegur og fjárhagslegur undirbúningur.

Málsnúmer: 1905135

Ferill máls

01

Ungmennaráð - 24. fundur

Lagt fram til upplýsinga.

Hrafnkell Proppé og Ragnheiður Einarsdóttir kynntu undirbúning Borgarlínu. Ungmennaráð þakkar fyrir góða kynningu.

02

Bæjarstjórn - 1197. fundur

Frá SSH, dags. 7. maí, lögð fram tillaga að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning vegna lagningar Borgarlínu, sem var samþykkt á fundi stjórnar SSH þann 6. maí sl. og vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með 11 atkvæðum samkomulag um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning 2019-2020 vegna lagningu Borgarlínu enda liggi fyrir samkomulag allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Framlag sveitarfélaganna kr. 500 m.kr. er með fyrirvara, sbr. 5. tl. samkomulagsins þar sem fram kemur að gert er ráð fyrir sama framlagi frá ríki og að samkomulag náist milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033.

Bæjarstjórn bókar eftirfarandi við afgreiðslu málsins:

"Bæjarstjórn Kópavogs fagnar fyrirliggjandi samningum um undirbúning að lagningu Borgarlínunnar. Um er að ræða tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning að hágæða almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fyrirkomulag og verkefnaskiptingu Vegagerðarinnar og SSH vegna þessa. Verkefnið er mikilvægur liður í því samkomulagi sem unnið er að á milli ríkisins og sveitarfélaganna um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2033. Samkvæmt erindisbréfi starfshóps sem vinnur að því er markmiðið að komast að samkomulagi um fjármögnun 102 milljarða fjárfestingaráætlunar í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu, eða um 7 milljarða á ári í 15 ár. Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu, stofnbrauta, almenningssamgangna og hjóla- og göngustíga, er afar brýnt viðfangsefni til að ná fram markmiðum um betra umferðarflæði, meira öryggi vegfarenda og til að draga úr mengun á svæðinu. Samþykkt á fyrirliggjandi samkomulagi um næstu skref hvað almenningssamgöngurnar varðar er mikilvæg en framhald heildaruppbyggingar samgöngumannvirkjanna ræðst síðan af því hvort ásættanlegt samkomulag náist á milli ríkis og sveitarfélaga."

03

Bæjarráð - 2958. fundur

Frá SSH, dags. 7. maí, lögð fram tillaga að samkomulagi aðildarsveitarfélaga SSH um tæknilegan og fjárhagslegan undirbúning vegna lagningar Borgarlínu, sem var samþykkt á fundi stjórnar SSH þann 6. maí sl. og vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.