Bæjarráð - 3008. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Hauksdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHákon Helgi Leifsson - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykktar Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir starfsemi í maí.
Lagt fram.
Frá menntaráði, lagðar fram endurskoðaðar reglur um innritun og útskrift nemenda fyrir Arnarskóla. Bæjarstjórn vísaði reglunum til seinni umræðu á fundi sínum þann 23. júní sl.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar reglur um innritun og útskrift nemenda fyrir Arnarskóla.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 30. júní, lagt fram erindi um stöðu framkvæmda og hönnunar við nýbyggingu Kársnesskóla við Skólagerði.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 11:38, fundi fram haldið kl. 11:47.
Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í slökkvitæki, brunatæki, þjónustu og úttektir fyrri allar stofnanir Kópavogsbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Öryggismiðstöðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Öryggismiðstöðina.
Frá sviðsstjóra umhverfisviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í öryggisviðvörunarkerfi, fjarvöktun og útkallsþjónustu vegna allra stofnana Kópavogsbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Securitas.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Securitas.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. júní, lagðar fram niðurstöður útboðs í öryggisviðvörunarkerfi, þjónustu og úttektir fyrir allar stofnanir Kópavogbæjar. Lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda Securitas.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Securitas.
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Dalsmára 7, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélagsins.
Frá lögfræðideild, dags. 30. júní, lögð fram umsögn um lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð að Urðarhvarfi 8 í Kópavogi að beiðni Lyfjastofnunar.
Bæjarráð veitir með fimm akvæðum jákvæða umsögn um umsókn um lyfsöluleyfi að Urðarhvarfi 8.
09
Hlíðarsmári 8, Austurlandahraðlestin ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun á rekstrarleyfi
Frá lögfræðideild, dags. 16. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Austurlandahraðlestarinnar ehf., kt. 520503-3230, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélagsins og veitir jákvæða umsögn.
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Leikfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 890.275,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
11
Hamraborg 10. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasambands Íslands um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 145.424,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
12
Hamraborg 11. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Rauða krossins um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 476.055,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
13
Hlíðarsmári 14. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 477.545,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
14
Hlíðarsmári 14. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsumdæmisins á Íslandi um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 702.535,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
15
Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsklúbbsins Muninn um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 476.055,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
16
Sandskeið við Bláfjallaveg. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Svifflugfélags Íslands um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.093.660,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
17
Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar RM Heklu um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.284.522,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
18
Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 29. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Bindindissamtaka IOGT um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.284.522,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
Frá lögfræðideild, dags. 30. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Áss styrktarfélags um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 6.681.905,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um styrk til greiðslu fasteignaskatts.
Frá verkefnastjóra stefnumótunar, lögð fram til samþykktar tillaga að heimsmarkmiðavísitölu Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu.
Frá verkefnastjóra stefnumótunar, lögð fram drög að skýrslu OECD um Kópavog.
Lagt fram til kynningar
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 18. júní, lögð fram gögn frá Vinnumálastofnun um fjölda þeirra sem hafa nýtt sér heimild um minnkað starfshlutfall eftir landshlutum.
Lagt fram.
Frá Sorpu, dags. 25. júní, lagðar fram tillögur vegna fjármála Sorpu ásamt tillögu að viðauka vegna áætlun um fjármögnun sem vísað er til efnislegrar umræðu og afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 1 um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 v. meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 2 um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun sem felur í sér greiðslur Kópavogsbæjar á árinu 2020 að fjárhæð 81.5 m.kr. verði dregnar af lánalínu bæjarins, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 24. mars. s.l., vegna samþykktar tillögu 2.
Frá Nature Experiences, dags. 15. júní, lögð fram umsókn um lóð að Vesturvör Kársnesi undir starsfemi tengdri íslenskri náttúru, menningu, listum og mat.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs
Fundargerð í 8 liðum
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 22 liðum.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 52 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
34.1 - 19081039 - Aðgerð og val á umhverfisviðurkenningum Umhverfis- og samgöngunefndar erindi frá Sigurði Sigurbjörnssyni
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga 2020.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur fram breytingartillögu á tillögu í minnisblaði sem er á þann veg að umhverfisviðurkenningar Kópavogsbæjar 2020 verði afhentar 29. ágúst kl. 14. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir breytingartillögu einróma.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
35.14 - 2006500 - Beiðni um samstarf sveitarfélaga varðandi félagsþjónustu fyrir heyrnarlausa og CODA börn á höfuðborgarsvæðinu
Erindi Félags heyrnarlausra dags. 18.05.2020 lagt fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti að taka þátt í kostnaði við samstarf sveitarfélaga í þjónustu við heyrnarlausa og börn þeirra. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
35.8 - 1912120 - Búsetuúrræði fyrir börn með neysluvanda
Greinargerð deildarstjóra dags. 16.06.2020 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti kostnað vegna vistunar barns á stuðningsheimili. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu til næsta fundar.
36
Beiðni bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur um að fá fulltrúa frá heilbrigðisnefnd og slökkviliðinu til að ræða eldvarnir og eftirlit
Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir því að fá fulltrúa frá heilbrigðisnefnd sveitarfélagsins ásamt fulltrúa frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á næsta fund bæjarráðs til að ræða eldvarnir og eftirlit.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð hvetur til samræmdra aðgerða allra hlutaðeigandi yfirvalda og hagaðila er koma að eftirliti og utanumhaldi um búsetu í ófullnægjandi húsnæði. Mikilvægt er að allir leggist á eitt um að öryggi fólks.
37
Ósk bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur um kynningu á fjárhagsáætlunum Sorpu, ásamt rekstrar- og umhverfisáætlunum.
Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir að fá kynningu á fjárhagsáætlunum Sorpu ásamt rekstrar- og umhverfisáætlunum.
Lagt fram.