Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillögur vegna fjármála SORPU bs

Málsnúmer: 20061262

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3008. fundur

Frá Sorpu, dags. 25. júní, lagðar fram tillögur vegna fjármála Sorpu ásamt tillögu að viðauka vegna áætlun um fjármögnun sem vísað er til efnislegrar umræðu og afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 1 um viðauka við eigendasamkomulag frá 25. október 2013 v. meðhöndlunar úrgangs í Álfsnesi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu 2 um aðgerðir til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga Sorpu bs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun sem felur í sér greiðslur Kópavogsbæjar á árinu 2020 að fjárhæð 81.5 m.kr. verði dregnar af lánalínu bæjarins, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 24. mars. s.l., vegna samþykktar tillögu 2.