Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2988. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Mælkó - Innanhúss hugbúnaðarþróun

Kynning á stöðu þróunar á hugbúnaðinum Mælkó, tengingu við framfaravogina og frekari möguleika.

Kynning.

02

Mánaðarskýrslur 2019

Frá fjármálastjóra, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir september, október, nóvember og desember.

Lagt fram.

03

Málefni skíðasvæðanna

Frá fjármálastjóra, dags. 4. febrúar, lögð fram umsögn um viðauka við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt lögð fram uppfærð umsögn fjármálastjóra vegna málsins frá 10. febrúar.

Lagt fram.

04

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata um erindisbréf forsætisnefndar.

Frá lögfræðideild, dags. 31. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 23. janúar sl. um hvenær erindisbréf forsætisnefndar hefði verið samþykkt.

Lagt fram.

05

Fyrirspurn frá Pírötum um íþróttaráð

Frá starfsmanni íþróttadeildar, dags. 3. febrúar, lagt fram svar við fyrirspurn í bæjarráði þann 19. desember sl. um formennsku í íþróttaráði.

Lagt fram.

Sigurbjörg E. Egildóttir vék af fundi kl. 9:35

06

Hafnarbraut 9 og 13-15. Beiðni um lækkun gatnagerðargjalda

Frá BK Legal, dags. 30. janúar, lagt fram erindi f.h. Kársnesbyggðar ehf. um lækkun gatnagerðargjalda vegna Hafnarbrautar 9 og Hafnarbrautar 13-15.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns

07

Hafnarbraut 4-8. Óskað eftir lækkun gatnagerðargjalda

Frá BK Legal, dags. 29. janúar, lagt fram erindi um endurupptöku á beiðni Hafnarbyggðar ehf. um lækkun gatnagerðargjalda vegna Hafnarbrautar 4-8.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns

08

Til umsagnar: Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 35/1970, um Kristnisjóð o.fl., með síðari breytingum (ókeypis lóðir), 50. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþings, dags. 30. janúar, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Kristnisjóð (ókeypis lóðir), þingmannafrumvarp.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns

09

Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 64. mál.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 30. janúar, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, þingmannatillaga.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns

10

Útboðsgögn vegna framkvæmda á skíðasvæðum frá samstarfsnefnd skíðasvæðanna

Frá samstarfsnefnd skíðasvæðanna, dags. 28. janúar, lögð fram til upplýsinga útboðsgögn vegna framkvæmda á skíðasvæðum.

Lagt fram.

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 284. fundur frá 30.01.2020

Fundargerð í 9 liðum.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

12

Lista- og menningarráð - 109. fundur frá 21.01.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

13

Lista- og menningarráð - 110. fundur frá 24.01.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

14

Skipulagsráð - 68. fundur frá 03.02.2020

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.


14.10 - 2001898 - Askalind 1. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar arkitekts dags. 28. janúar 2020 fh. lóðarhafa Askalindar 1. Í fyrirspurninni er óskað eftir leyfi til að hækka áður samþykkta viðbyggingu um eina hæð, viðbótar byggingargagn er áætlað um 180 m2. Uppdrættir í mkv. 1:200, 1:500 og 1:1000 dags. 30. janúar 2020.

Neikvætt. Skipulagsráð bendir lóðarhafa á að sambærileg tillaga með þriggja hæða viðbyggingu við austurhlið Askalindar 1 var grenndarkynnt árið 2015. Í kjölfar athugasemda og ábendinga er bárust á kynningartíma var að hálfu lóðarhafa lögð fram breytt tillaga þar sem fallið var frá þriðju hæðinni til að koma til móts við þær athugasemdir og ábendingar sem bárust. Var sú breytta tillaga lögð fyrir skipulagsráð 21. mars 2016 sem samþykkti tillöguna. Tillagan var samþykkt í bæjarstjórn 12. apríl 2016 og tók hún gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda 25. apríl 2016. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Júlíus Hafstein situr hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



14.13 - 19081140 - Hlíðarvegur 31 og 31a. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Jóns H. Hlöðverssonar arkitekts dags. 9. ágúst 2019 fh. lóðarhafa Hlíðarvegar 31 þar sem óskað er eftir að skipta lóðinni upp og reisa nýtt íbúðarhús á nýrri lóð, Hlíðarvegi 31a. Um er að ræða byggingu á einni hæð án bílskúrs og gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóð. Ný lóð væri 466 m2 og íbúðarhúsið 128,3 m2, nýtingarhlutfall 0,28. Á fundi skipulagsráðs 4. nóvember 2019 samþykkti skipulagsráð með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 28, 29, 30, 31, 32, 33, 34, 35, 36, 37, 38, 39, 40 og 72, Hrauntungu 48, 50, 52 og Grænutungu 8. Kynningartíma lauk 10. desember 2019. Ábendingar og athugasemdir bárust á kynningartímanum. Á fundi skipulagsráðs 16. desember 2019 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 28. janúar 2020.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



14.4 - 2001204 - Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Bílastæðahús. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga ASK arkitekta að þriggja hæða bílastæðahúsi fyrir 310 bíla norðan Smáralindar að Hagasmára 1. Í tillögunni felst jafnframt að lóðamörk Hagasmára 1 breytist við aðkomugötu frá Fífuhvammsvegi að Smáralind og aðkomugatan hliðrast að hluta til vesturs næst Smáralind og fyrirkomulag bílastæða og gatnatengingar næst norðurhlið Smáralindar breytast. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 28. janúar 2019.
Ennfremur lagt fram erindi Helga S. Gunnarssonar, forstjóra Regins hf. dags. 24. janúar 2020 varðandi fyrirhugað bílastæðishús norðan Smáralindar.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



14.8 - 2001835 - Lundur 22. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 24. janúar 2020 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Lund 22. Í breytingunni felst að íbúð á 3. hæð hússins er stækkuð til suðurs í átt að Nýbýlavegi. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum í mkv. 1:100 dags. 24. janúar 2020.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



14.9 - 2001897 - Naustavör 44-50. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar arkitekts dags. 16. október 2018 fh. lóðarhafa Naustavarar 44-50 þar sem óskað er eftir að stækka íbúð á 4. hæð þannig að stofa stækkar um 10 m2 og þaksvalir stækka til austurs. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. í janúar 2020 ásamt skýringarmyndum.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.


15

Fundargerð 91. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 24.02.2020

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram

16

Fyrirspurn Theódóru S. Þorsteinsdóttur um fjárfestingaráætlun nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu

Lögð fram fjárfestingaráætlun fyrir byggingu nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu sem óskað var eftir á síðasta fundi bæjarráðs.

Lagt fram.

17

Fyrirspurn bæjarfulltrúa BF Viðsreisnar um endurmat á hlutverki nefnda og ráða varðandi stefnumótun innan málaflokka

Frá Theodóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfulltrúa BF Viðreisnar, óskað er eftir endurmat á því hvort nefndir og ráð séu að vinna eftir því verklagi sem kemur fram í erindisbréfum og þeim markmiðum sem lagt var upp með um ríkara stefnumótunarhlutverk kjörinna fulltrúa og ráðsmanna í ráðunum og að mat verði lagt á hvort þörf sé á að endurmeta starfshlutfallið. Óskað eftir upplýsingum um hvað búið sé að halda marga stefnumótunarfundi í ráðunum þremur frá því þessi ákvörðun var samþykkt í bæjarstjórn og hvort ráðin séu búin að móta heildarstefnu í málaflokknum og endurskoða aðrar stefnur

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.