Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa BF Viðsreisnar um endurmat á hlutverki nefnda og ráða varðandi stefnumótun innan málaflokka

Málsnúmer: 2001574

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2988. fundur

Frá Theodóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfulltrúa BF Viðreisnar, óskað er eftir endurmat á því hvort nefndir og ráð séu að vinna eftir því verklagi sem kemur fram í erindisbréfum og þeim markmiðum sem lagt var upp með um ríkara stefnumótunarhlutverk kjörinna fulltrúa og ráðsmanna í ráðunum og að mat verði lagt á hvort þörf sé á að endurmeta starfshlutfallið. Óskað eftir upplýsingum um hvað búið sé að halda marga stefnumótunarfundi í ráðunum þremur frá því þessi ákvörðun var samþykkt í bæjarstjórn og hvort ráðin séu búin að móta heildarstefnu í málaflokknum og endurskoða aðrar stefnur

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.