Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2946. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Þjónustukönnun sveitarfélaga 2018 - Gallup

Kynning á niðurstöðum Kópavogsbæjar úr könnun á þjónustu sveitarfélaga 2018.

Lagt fram.

02

Óskað eftir kynningu á niðurstöðum viðhorfskönnunar um gæði matar og þjónustu til eldri borgara frá fulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar

Kynning á niðurstöðum nýlegrar viðhorfskönnunar um gæði matar og þjónustu til eldri borgara sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum þann 31. janúar sl.

Lagt fram.

03

Bæjarlind 2, Íslenska flatbakan. Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 4. febrúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. janúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Braggapizzu ehf., kt. 441102-3050, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Bæjarlind 2, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

04

Rammasamningur. Þjónusta verktaka fyrir umhverfissvið 2019-2022

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 12. febrúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði rammasamninga fyrir þjónustu verktaka fyrir umhverfissvið Kópavogsbæjar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila opið útboð á rammasamningum fyrir þjónustu verktaka fyrir umhverfissvið bæjarins í samræmi við framlagt erindi.

05

Umhverfissvið - Vinnuskóli 2019

Frá verkefnastjóra gatnadeildar, dags. 5. febrúar, lagðar fram tillögur um laun og vinnutíma ungmenna í Vinnuskóla Kópavogs sumarið 2019.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar tillögur um laun og vinnutíma fyrir ungmenni á aldrinum 14-17 ára í Vinnuskóla Kópavogs sumarið 2019.

06

Umhverfissvið - Skólagarðar 2019

Frá verkefnastjóra gatnadeildar, dags. 7. febrúar, lagðar fram tillögur um fyrirkomulag og þátttökugjald vegna Skólagarða árið 2019.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar tillögur um fyrirkomulag og þátttökugjald vegna Skólagarða árið 2019.

07

Auglýst eftir framboðum til stjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga

Frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 11. febrúar, lögð fram auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Tilnefningar skulu berast í síðasta lagi 4. mars nk.

Lagt fram.

08

Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, 509. mál

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 7. febrúar, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 (stjórnartillaga).

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

09

Frumvarp til laga um breytingu á á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 6. febrúar, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (stjórnarfrumvarp).

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

10

Nordjobb sumarstörf 2019

Frá Nordjobb á Íslandi, dags. 1. febrúar, lagt fram erindi um þátttöku í verkefninu sumarið 2019 þar sem óskað er eftir að bærinn ráði ungt fólk frá hinum Norðurlöndunum til sumarstarfa.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum og vísar málinu til starfsmannastjóra til afgreiðslu.

11

Hafnarbraut 4-8. Óskað eftir lækkun gatnagerðargjalda

Frá Hafnarbyggð ehf., dags. 7. febrúar, lagt fram erindi um lækkun gatnagerðargjalda á grundvelli 7. gr. bæjarmálasamþykktar Kópavogs.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

12

Lista- og menningarráð - 98. fundur frá 30.01.2019

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

13

Menntaráð - 37. fundur frá 05.02.2019

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 299. fundar stjórnar Strætó bs. frá 01.02.2019

Fundargerð í 8. liðum.

Lagt fram.

15

Ungmennaráð - 8. fundur frá 11.02.2019

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

16

Velferðarráð - 40. fundur frá 11.02.2019

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.


16.4 - 1712958 - Lögblindir - leigubílaakstur

Samningur lagður fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti framlagðan samning fyrir sitt leyti og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir samning við Blindrafélagið um leigubílaakstur með fimm atkvæðum.


17

Tillaga um skipan starfshóps um stöðu á húsnæðismarkaði frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Tillaga frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp um stöðu á húsnæðismarkaði. Starfshópurinn hafi til hliðsjónar skýrslu þverpólitísks hóps um sama efni á síðastliðnu kjörtímabili. Hópurinn verði skipaður einum fulltrúa frá hverju framboði, sem sæti á í bæjarstjórn, auk bæjarstjóra sem verði formaður hópsins.

Hlé var gert á fundi kl. 10:17. Fundi var fram haldið kl. 10.33.

Kl. 10.33 vék Theódóra Þorsteinsdóttir af fundi.

Afgreiðslu málsins var frestað.