Tillaga um skipan starfshóps um stöðu á húsnæðismarkaði
Málsnúmer: 1902313
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1191. fundur
Tillaga frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp um stöðu á húsnæðismarkaði. Starfshópurinn hafi til hliðsjónar skýrslu þverpólitísks hóps um sama efni á síðastliðnu kjörtímabili. Hópurinn verði skipaður einum fulltrúa frá hverju framboði, sem sæti á í bæjarstjórn, auk bæjarstjóra sem verði formaður hópsins. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 14. febrúar sl.
02
Bæjarráð - 2947. fundur

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2946. fundur
Tillaga frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp um stöðu á húsnæðismarkaði. Starfshópurinn hafi til hliðsjónar skýrslu þverpólitísks hóps um sama efni á síðastliðnu kjörtímabili. Hópurinn verði skipaður einum fulltrúa frá hverju framboði, sem sæti á í bæjarstjórn, auk bæjarstjóra sem verði formaður hópsins.
Hlé var gert á fundi kl. 10:17. Fundi var fram haldið kl. 10.33.
Kl. 10.33 vék Theódóra Þorsteinsdóttir af fundi.
Afgreiðslu málsins var frestað.