Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3241. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Björg Baldursdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Elísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Starfsaldursforseti Theódóra S. Þorsteinsdóttir stýrði fundi í fjarveru formanns og varaformanns.

Dagskrá fundar

Ýmis erindi

01

Samgöngusáttmálinn - sex mánaða skýrsla Betri samgangna ohf.

Frá SSH, dags. 06.01.2026, lögð fram til kynningar árshelmingsskýrsla Betri samgangna ohf.

Lagt fram.

Umræður.

Fundargerðir nefnda

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 434. fundur frá 19.12.2025

Fundargerð í 13 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

03

Menntaráð - 154. fundur frá 06.01.2026

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

Umræður um 2. lið fundargerðarinnar.

Fundargerðir nefnda

04

Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.12.2025

Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.12.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

05

Fundargerð 620. fundar stjórnar SSH frá 10.12.2025

Fundargerð 620. fundar stjórnar SSH frá 10.12.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

06

Fundargerð 142. fundar Svæðisskipulagsnefndar frá 28.11.2025

Fundargerð 142. fundar Svæðisskipulagsnefndar frá 28.11.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Fundargerð 433. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.12.2025

Fundargerð 433. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.12.2025.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

08

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um grænkerafæði í leikskólum

Frá bæjarfulltrúa Pírata, dags. 06.02.2026, lögð fram svohljóðandi fyrirspurn:

Undirrituð óskar eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi grænkerafæði (vegan) í

leikskólum Kópavogsbæjar og stöðu innleiðingar.

1. Bjóða allir leikskólar Kópavogsbæjar upp á grænkerafæði (vegan) sem valkost fyrir

börn, ef óskað er eftir því af hálfu forráðamanna? Ef nei, hvaða leikskólar eru það

og hver er ástæðan?

2. Óskað er eftir upplýsingum um fjölda barna sem eru skráð í grænkerafæði í

hverjum leikskóla fyrir sig.

3. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig fræðslu og námskeiðum um grænkerafæði

fyrir starfsfólk leikskóla hefur verið háttað eftir að samþykkt var að bjóða upp á

vegan fæði í leikskólum Kópavogs vorið 2022.

Bæjaráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.