Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um grænkerafæði í leikskólum

Málsnúmer: 2601347

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3244. fundur

Frá menntasviði, dags. 26.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn um grænkerafæði í leikskólum.

Lagt fram og umræður.

Bæjarráð vísar erindinu að nýju til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Bókun:

"Undirrituð óskar eftir að spurningum sínum sé svarað í samræmi við efni þeirra."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

02

Bæjarráð - 3241. fundur

Frá bæjarfulltrúa Pírata, dags. 06.02.2026, lögð fram svohljóðandi fyrirspurn:

Undirrituð óskar eftir upplýsingum um stöðu mála varðandi grænkerafæði (vegan) í

leikskólum Kópavogsbæjar og stöðu innleiðingar.

1. Bjóða allir leikskólar Kópavogsbæjar upp á grænkerafæði (vegan) sem valkost fyrir

börn, ef óskað er eftir því af hálfu forráðamanna? Ef nei, hvaða leikskólar eru það

og hver er ástæðan?

2. Óskað er eftir upplýsingum um fjölda barna sem eru skráð í grænkerafæði í

hverjum leikskóla fyrir sig.

3. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig fræðslu og námskeiðum um grænkerafæði

fyrir starfsfólk leikskóla hefur verið háttað eftir að samþykkt var að bjóða upp á

vegan fæði í leikskólum Kópavogs vorið 2022.

Bæjaráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.