Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3094. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Indriði Ingi Stefánsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um kaup Kópavogsbæjar á veitingum á meirihlutafundum

Lagt fram svar við fyrirspurn Sigurbjargar E. Egilsdóttur um veitingar á meirihlutafundum.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirritaður bókar mikilvægi þess að farið sé að innkaupareglum og samþykktum bæjarins við kaup á veitingum og þar sem bærinn er fjölskipað stjórnvald og öllum eigi að vera fyrirsjáanlegt hvernig ákvörðun um slík innkaup fari fram."

Indriði Ingi Stefánsson.

Bókun:

"Samlokur og djús voru keyptar fyrir fyrsta meirihlutafund nýs meirihluta sem haldinn var með starfsmanni bæjarins í bæjarstjórnarsal í hádegi. Það stendur ekki til að kaupa veitingar á meirihlutafundi kjörtímabilsins."

Ásdís Kristjánsdóttir, Orri Hlöðversson, Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson.

Erindi frá bæjarfulltrúum

02

Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi um áhrif hækkunar bóta almannatrygginga á bótaþega í Kópavogi

Frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttur, dags. 2. ágúst 2022, lögð fram fyrirspurn um áhrif hækkunar bóta almannatrygginga á bótaþega í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs.

Erindi frá bæjarfulltrúum

03

Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssonar um gildi 154. fundar Umhverfis- og samgöngunefndar

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 27. júlí 2022, lögð fram fyrirspurn um gildi 154. fundar Umhverfis- og samgöngunefndar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarlögmanns.

Erindi frá bæjarfulltrúum

04

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssonar um framkvæmd yfirkjörstjórnar Kópavogs á skyldum skv. 119. gr. kosningalaga.

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 27. júlí 2022, lögð fram fyrirspurn um framkvæmd yfirkjörstjórnar á skyldum skv. 119. gr. kosningalaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarritara.