Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssonar um gildi 154. fundar Umhverfis- og samgöngunefndar

Málsnúmer: 2208028

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3095. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 16.08.2022, lögð fram umsögn um lögmæti fundar í fastanefnd vegna fundarboðunar.

Málið rætt og lagt fram.

Bókun:

"Undirrituð þakkar svarið. Mikilvægt er að tryggja að nefndarfulltrúar séu upplýstir um breytingar á samskiptaleiðum af hálfu bæjarins, og ganga úr skugga um að boðun funda skili sér ef víkja þarf frá almennum fundartíma nefnda, sér í lagi á tíma sumarleyfa."

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

02

Bæjarráð - 3094. fundur

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 27. júlí 2022, lögð fram fyrirspurn um gildi 154. fundar Umhverfis- og samgöngunefndar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarlögmanns.