Bæjarráð - 3025. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarlögmanni, dags. 19. nóvember, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Dalaþings 32, Bjössa ehf., um heimild til að framselja lóðina til Stefáns Hjalta Óskarssonar og Esterar Jóhannsdóttur.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðið framsal.
Frá lögfræðideild, dags. 19. nóvember 2020, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 20. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Thai food BKG ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Smiðjuvegi 11, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.
Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, lögð fram ársskýrsla 2019.
Lagt fram.
Frá Umhverfisstofnun, dags. 19. nóvember, lögð fram tilkynning um að tillaga að breytingu á starfsleyfi urðunarstaðar Sorpu í Álfsnesi er komin í auglýsingu þar sem veittur er frestur til athugasemda til og með 17. desember nk.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 17. nóvember, lagt fram erindi um endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri í réttindasafni Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fyrir árið 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
Frá SSH, dag. 17. nóvember, lögð fram fjárhagsáæltun svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins sem vísað er til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til gerðar fjárhagsáæltunar.
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 24. nóvemer, lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir slökkviliðið.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar.
08
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga, nr. 1402019 (sveitarfélag fyrsta lögheimilis), 82. mál.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 19. nóvemer, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu einstaklinga; sveitarfélag fyrsta lögheimilis (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 19. nóvember, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um menntastefnu 2020-2030 (stjórnartillaga).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 18. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi; vannýttur lífmassi í fiskeldi (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
11
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 18. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum; uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
12
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 602013 (málsmeðferð o.fl.), 276. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 17. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd; málsmeðferð o.fl. (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 18. nóvember, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega (þingmannatillaga).
Lagt fram.
14
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 240. mál.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 18. nóvember, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum (þingmannatillaga).
Lagt fram.
Fundargerð í 13 liðum.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð 113. fundar í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 24 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Frá velferðarráði, drög að reglum um ferðaþjónustu aldraðra lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
25
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um stöðu gerðar viðbragðsáætlunar til að draga úr loftlagsmengun
Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, óskað er eftir upplýsingum um stöðu á gerð viðbragðsáætlunar til að draga úr loftmengun í samræmi við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarritara.
26
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um samræmdar aðgerðir um eftirlit og utanumhald um búsetu í ófullnægjandi húsnæði
Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, fyrirspurn um stöðu samræmdra aðgerða um eftirlit og utanumhald um búsetu í ófullnægjandi húsnæði.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarritara.
27
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, lögð fram fyrirspurn varðandi umferðarstýringu á höfuðborgarsvæðinu skv. samgöngusáttmála, sem óskað er eftir að tekið verði á dagskrá stjórnar SSH.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar stjórnar SSH og stjórnar Betri samgangna.