Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smiðjuvegur 11, Thai food BKG ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer: 2010494

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3025. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 19. nóvember 2020, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 20. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Thai food BKG ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Smiðjuvegi 11, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.