Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2978. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Vallakór 12-14, HK. Umsagnarbeiðni v. umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 16. október, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Handknattleiksfélags Kópavogs, kt. 630981-0269, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Vallakór 12-14, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Ýmis erindi

02

Jafnréttisáætlun sveitarfélaga

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. október, lagt fram erindi um jafnréttisáætlanir sveitarfélaga.

Lagt fram.

Ýmis erindi

03

Til umsagnar: Frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl.), 317. mál.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 11. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl.), stjórnarfrumvarp.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

Ýmis erindi

04

Til umsagnar: Frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými), 328. mál

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 6. nóvember, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými), stjórnarfrumvarp.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

Sigurbjörn Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Píratar í Kópavogi fagna frumvarpi um neyslurými en það er staðfesting á því og viðurkenning að í auknum mæli er horfið frá refsistefnu stjórnvalda yfir í skaðaminnkandi úrræði. Vímuefnamisnotkun er heilbrigðisvandamál sem þarf að leysa sem slíkt og aðstoð við jaðarsetta einstaklinga ætti ávallt ganga út frá valdeflingu og skaðaminnkun.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"

Pétur Hrafn Sigurðsson tók undir bókun Sigurbjargar.

Fundargerðir nefnda

05

Íþróttaráð - 96. fundur frá 31.10.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerð

06

Leikskólanefnd - 112. fundur frá 31.10.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerð

07

Menntaráð - 50. fundur frá 31.10.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lögð fram.

Fundargerð

08

Menntaráð - 51. fundur frá 05.11.2019

Fundargerð í 12 liðum.

Lögð fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerð 415. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 01.11.2019

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Fundargerð 478. fundar stjórnar SSH frá 04.11.2019

Fundargerð í 19 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

11

Velferðarráð - 53. fundur frá 11.11.2019

Fundargerð í 10 liðum.

Lagt fram.


11.8 - 1901639 - Endurskoðun á reglum um NPA

Drög að reglum ásamt greinargerð deildarstjóra, dags. 7. nóvember 2019 lögð fram til afgreiðslu.

Lögð var fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð gera athugasemd við ákvæði um upphæð framlags í 12. grein, þar sem segir að taxti sólarhringsþjónustu miðist við sofandi næturvakt. Samkvæmt núgildandi kjarasamningum er gert ráð fyrir hærra tímakaupi þegar um vakandi næturvakt ræðir og því er mikilvægt að reglurnar komi ekki í veg fyrir að notandi geti greitt aðstoðarfólki sínu kjarasamningsbundin laun þegar svo ber undir.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Andrés Pétursson
Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir
Donata Honkowicz Bukowska"

Hlé var gert á fundi kl. 18:30.
Fundur hófst að nýju kl. 18:36.

Lögð var fram eftirfarandi bókun:
"Kópavogsbær greiðir næst hæsta taxta allra sveitarfélaga á landinu sem eru með NPA samninga og mun í þessum efnum eins og ávallt uppfylla kjarasamninga. En hins ber að gæta að fjármagn það sem ríkið leggur til málaflokksins er föst upphæð og hækkun á tímagjaldi þýðir einfaldlega færri tímar og eða færri samningar.
Guðmundur G. Geirdal
Björg Baldursdóttir
Halla Karí Hjaltested
Baldur Þór Baldvinsson"

Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti með fjórum atkvæðum Guðmundar G. Geirdals, Bjargar Baldursdóttur, Höllu Kari Hjaltested og Baldurs Þórs Baldvinssonar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.