Til baka í fundargerðir
Vallakór 12-14, HK. Umsagnarbeiðni v. umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1910131
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2978. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 16. október, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Handknattleiksfélags Kópavogs, kt. 630981-0269, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Vallakór 12-14, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.