Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2983. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Birkir Jón Jónsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - varamaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Þjónusta Veitna í efri byggðum Kópavogs

Framkvæmdastjóri Veitna kemur á fund bæjarráðs og fer yfir stöðu á heitu vatni í efri byggðum Kópavogs.

Kynning og umræður.

02

Ósk um samstarf um íþróttaveislu UMFÍ

Kynning á Íþróttaveislu UMFÍ sem verður haldin í júní 2020 í Kópavogi.

Lagt fram.

03

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Kynning á mælaborði um velferð barna í Kópavogi.

Lagt fram.

04

Fífan, Breiðablik. Umsagnarbeiðni vegna brennu 31.12.2019

Fundarhlé hófst kl. 10:42. fundi fram haldið kl. 10:47

Frá lögfræðideild, dags. 10. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 27. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Breiðabliks, kt. 480169-0699, um leyfi fyrir áramótabrennu á bílastæði fjær sunnan megin við Fífuna í Kópavogi á gamlárskvöld 31. desember 2019 kl. 20:30.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn.

05

Gulaþing, áramótabrenna. Umsagnarbeiðni vegna brennu

Frá lögfræðideild, dags. 10. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 28. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Árna Þórs Árnasonar, kt. 240366-5179, um leyfi fyrir áramótabrennu ofan við Gulaþing í Kópavogi á gamlárskvöld 31. desember 2019 kl. 20:30.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn en bendir á ósamræmi í stærð brennu og brennu tíma.

06

Hamraborg 6. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 10. desember, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Tónlistarfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til styrkumsókn að upphæð kr. 3.534.000,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts af fasteign Tónlistarfélags Kópavogs.

07

Forsalir 1. Fyrirspurn um styrk til rafvæðingar í bílakjöllurum fjölbýlishúsa

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og deildarstjóra gatnadeildar, dags. 17. desember, lögð fram umsögn um fyrirspurn um styrk til uppsetningar hleðslustöðva rafbíla við fjöleignahús frá húsfélaginu Forsölum 1. Einnig lagt fram minnisblað deildarstjóra gatnadeildar, dags. 17. desember, um fyrirkomulag hleðslustöðva fyrir rafbíla á bæjarlandi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að hafna erindinu.

08

Íþróttahúsið Digranes, endurnýjun íþróttagólfs.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 16. desember, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði endurnýjun á íþróttagólfi í íþróttahúsinu Digranesi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til útboðs.

09

Okkar Kópavogur 2019 - 2021

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, dags. 16. desember, lagt fram til samþykktar erindisbréf kjörstjórnar í lýðræðisverkefninu Okkar Kópavogur, ásamt kjörseðli yfir þær 100 hugmyndir sem fara áfram í íbúakosningu. Einnig lagðar fram til samþykktar reglur um rafrænar kosningar í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagt erindisbréf, kjörseðil og reglur um rafrænar kosningar.

10

Útboð á ákveðnum þjónustuþáttum UT reksturs og UT þjónustu til að auka öryggi reksturs

Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 17. desember, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í útboð á úthýsingu verkefna til að auka öryggi í samræmi við framlögð útboðsgögn.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til útboðs.

11

Gjaldskrá sundlauga 2020

Lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir sundlaugar Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá sundlauga með fimm atkvæðum.

12

Til umsagnar: Frumvarp til nýrra laga um fjarskipti

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 10. desember, lagt fram til umsagnar frumvarp til nýrra fjarskiptalaga.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

13

Ný umferðarlög, kynning á breytingum

Frá Samgöngustofu, dags. 16. desember, lagt fram erindi þar sem vakin er athygli á að um áramótin taka gildi ný umferðarlög.

Lagt fram til kynningar og vísast til kynningar menntasviðs og umhverfissviðs.

14

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 281. fundur frá 06.12.2019

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

15

Íþróttaráð - 98. fundur frá 11.12.2019

Fundargerð í 42 liðum

Lagt fram.

16

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 74. fundur frá 11.12.2019

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

17

Leikskólanefnd - 114. fundur frá 12.12.2019

Fundargerð í 5 liðum

Lagt fram.

18

Lista- og menningarráð - 107. fundur frá 12.12.2019

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.


18.2 - 1909259 - Málefni Gerðarsafns 2015-2019 - Framhaldsmál frá 2011

Minnisblað frá forstöðumanni Gerðarsafns lagt fram.

Lista- og menningarráð vísar erindinu til bæjarráðs.

Bæjarráð vísar til nýsamþykktrar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 þar sem fram koma samþykktar heimildir stöðugilda.


19

Skipulagsráð - 65. fundur frá 16.12.2019

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

20

Fundargerð 416. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 06.12.2019

Fundargerð í 10 liðum.

Lagt fram.

21

Fundargerð 479. fundar stjórnar SSH frá 02.12.2019

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.

22

Fyrirspurn frá Pírötum um íþróttaráð

Fyrirspurn frá Pírötum um kjör formanns og varaformanns íþróttaráðs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara

Bæjarráð samþykkir að fundur ráðsins 2. janúar 2020 falli niður.